Episódios
-
Þá trekkjum við tímavélina í gang í 124. sinn og síðasta sinn. Árin sem við heimsækjum eru 1957 það sumar voru einmitt fyrstu stöðumælarnir settir upp í Reykjavík öllum til gleði og svo er það árið 1967 en það sumar spiluðum við við Dani á Idrætsparken og töpuðum 14:2. Það var lítil gleði sem fylgdi því - mjög lítil. Þaðan höldum við svo til ársins 1977 sem var eitt þeirra ára sem kattþrifin dönsk barnahjúkrunarkona ferðaðist um landið og baðaði sig. Síðasta árið sem við heimækjum á þessu ferðalagi okkar til fortíðar er svo 1987 en við byrjum að sjálfsögðu á árinu 1957. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal var alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Þá höldum við enn af stað, kominn 19. júlí og samt fullt í fréttum árin 1959, 1969, 1979 og 1989. Við heyrum af kynferðisáhuga Billy Graham árið 1969, dauða diskósins árið 1979 og LIndu Pé í El Salvador 1989 en byrjum árið 1959 og þá mátti lesa í Alþýðublaðinu að yfirvöld í Noregi lýstu eftir skátaflokki þýskum sem hefði skilið 14 ára meðlim í flokknum eftir á sjúkrahúsi í Köningsberg og haldið svo áfram för sinni. Drengurinn var útskrifaður af sjúkrahúsinu en hafði ekki hugmynd um hvar hinir voru og í ofanálag voru þeir með farmiðann hans og vegabréfið. Við vonum að skátinn hafi að lokum komist heim og syngjum gingang gúllí gúllí hér kemur 1959.. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Estão a faltar episódios?
-
Jú það er kominn 12. júlí og að þessu sinni höldum við til áranna 1952 en það var árið sem Nína Tryggvadóttir lenti í vandræðum við að komast heim til Bandaríkjanna vegna meintra tengsla við kommúnista. Þaðan förum við til 1962 en þá leituðu menn logandi ljósi að upptökum taugaveikibróður sem var veiki sem lagðist illa á menn. Næst er það svo 1972 þegar fréttir bárust af íranskri konu, 66 ára gamalli sem ól manni sínum sveinbarn og við endum svo á árinu 1982 sem var sumarið sem Ítalir unnu heimsmeistaratitilinn í fótbolta. En byrjum á byrjuninni og fáum Hank Williams til að syngja okkur til ársins 1952. tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér sagði skáldið. Það er því tilvalið að reyna að stöðva hann aðeins og skoða hvernig umhorfs var í heiminum þann 5. júlí árin 1955, 65, 75 og 85. Árið 1955 voru forsetahjónin í opinberri heimsókn í vestmannaeyjum en varðskipið sem flutti þau í eyjarnar gat ekki flutt þau til baka. Ástæðan var belgískur landhelgisbrjótur sem þurfti að ýta út úr landhelginni og var varðskipið sent til þeirra starfa. Reyndist þetta skip sem áður hafði verið staðið að ólöglegum veiðum. Ekki kemur fram hvernig forsetahjónin komust aftur heim. Kannski eru þau þarna ennþá? Árið 1965 sagði Vísir af norrænu þingi húsmæðrakennara og birti mynd af þungbúnum en ákaflega vel til höfðum eldri konum í fundarsal í Hagaskóla og árið 1975 var gestagangur á Íslandi, 100 þýskir áhugaljósmyndarar heimsóttu landið og einnig breska stuðhljómsveitin The River Band. Að auki kom enginn annar en Long John Baldry til landsins og söng með Hafróti á Röðli en einhvern veginn grunar mann að Jakob Frímann Magnússon hafi staðið að baki þeirri heimsókn enda tróðu Stuðmenn upp í Selfossbíói Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Einn, tveir og - við tökum vakurt vinsta hopp og hverfum aftur til áranna 1950, 1960, 1970 og 1980. Við kusum okkur forseta sumarið 1960 - sá hét Ásgeir Ásgeirsson og svo annan í júnílok árið 1980, Vigdísi Finnbogadóttur. Þáttur dagsins ber þess merki enda einkar viðeigandi þegar við fögunum forsetakosningum nú um helgina. Hipp, hipp húrra fyrir frambjóðendum - og að því sögðu hverfum við til ársins 1950. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
komiði sæl og gleðilega jónsmessu. Hún er auðvitað fæðingarhátíð Jóhannesar skírara og ber raunar upp á 24. júní. Samkvæmt Wikipedia eru til ritaðar heimildir um að skrifa nafn Jóhannesar skírara Jón eða Jóan skírari eða baptisti og þaðan er heitið Jónsmessa, frekar en Jóhannesarmessa komið. Hún mun vera eini fæðingardagur dýrlings sem haldinn er helgur utan eina af sjö helstu messum Maríu guðsmóður, en einn þeirra, 8. september er áætlaður fæðingardagur hennar en nóg um Biblíusögurnar, við ætlum á tímflakk og heimsækja árin 1984, 1974, 1964 og 1954 en þar byrjum við því við Bergsson og Blöndal erum svo mikil bimbó.. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Jæja gott fólk okkur er ekki til setunnar boðið við leggjum af stað í ferð til fortíðar. Við heimækjum árin 1958, 1968, 1978 og 1988 og skoðum hvað var að gerast um miðjan júní þessi ár. Forsmáðir íslenskir þjóðdansar, hádagurinn og Curd Jurgens, landgrunnspeningurinn og upprunarannsókn bongóblíðunnar. Komiði með - við höldum til ársins 1958 Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Heil og sæl öll - þá höldum við flakkinu áfram og eins og venjulega verður haldið til fortíðar. Við höldum til áranna sem enda á sex, 56, 66, 76 og 86 og skoðum fyrstu daga júnímánaðar. Við fögnum sjómannadeginum, fussum yfir innfluttum vatnsmiklum írskum kartöflum og svo leggjum við tarotspil eftir kúnstarinnar reglum. Eins og venjulega byrjum á elsta ártalinu, 1956. Þar kennir ýmissa grasa þegar kemur að fréttaefni og í byrjun júní mátti t.d. sjá frétt í Morgunblaðinu þar sem sagði frá því að afmælis Bretadrottingar Elísabetar II hafi verið minnst á heimili breska sendiherrans Hendersons og konu hans að Laufásvegi 33. Var margt gesta við síðdegisdrykkju, segir í blaðinu og bað Mr. Henderson sendiherra gesti sína að drekka minni drottningar, sem þeir gerðu. Já það er næg innstæða í minningabanka Bergsson og Blöndal sem fara á tímaflakka á hverjum sunnudegi kl. 15.02 á Rás 2
-
Þá leggjum við enn í hann og heimsækjum árin 1953, 63, 73 og 83. Þetta voru stór mánaðarmót í heimssögunni árið 1953 þegar Nepalinn Norgay og Bretinn Hillary urðu fyrstu menn til að komast á topp Mont Everest og það var allsekki það stærsta. Vitiði hvað hitt var? Þið fáið 30 sekúndur til að hugsa málið... Á meðan þið brjótið heilann getum við sagt ykkur að árið 1963 kom önnur stóra platan með Bob Dylan út. Hún heitir Freewheelin? og á henni má meðal annars heyra lag sem heitir Blowing in the wind og 1973 var stuð á Kjarvalsstöðum þegar þeir Nixon og Pompidou hittust á fundi mitt á milli Parísar og Washington. Svo endum við 1983 en þá var verðbólgumet slegið á Íslandi þegar framfærsluvísitalan hækkaði um 25,1% á þremur mánuðum og hækkun lánskjaravísitölu á ársgrundvelli varð 158,9%. En eruð þið komin að niðustöðu með 1953? jú Elísabet Alexandra Mary Windsor settist þann 2. júní í hásætið í Breska heimsveldinu og varð Elísabet önnur. Hún situr þar enn... Tímaflakk með Bergsson og Blöndal eru alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
heil og sæll öll, þá er ekki eftir neinu að bíða, við spólum til baka, hraðspólum svei mér þá! Að þessu sinni heimsækjum við árin 1959 og heyrum af íslenskum skólabörnum sem horfðu á amerískar kvikmyndir með morðum og ástarlífssenum. 1969 - þegar bruggarar, pressuger og íslenskar húsmæður fléttuðust saman á óvæntan og áhrifaríkan hátt. 1979 sem var árið þegar helstu diskótoppar heims mættu í Hollywood og svo árið 1989. Það helsta í fréttum um mánaðarmótin maí og júní það ár var hvað? Jú áfengiskaup helstu frammámanna þjóðarinnar. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Komiði sæl kæru tímaflakkarar. Við Bergsson og Blöndal hlökkum til að vera með ykkur næsta klukkutímann. Við ætlum að heimsækja árið 1955 en í maí byrjun var Vestur Þýskaland viðurkennt sem sjálfstætt ríki og froskurinn Kermit kom fram í fyrsta sinn! Svo förum við til 1965 en þá logaði allt í deilum vegna Vietnamstríðsins og svo höldum við til 1975 en þá var Elton John stærsta poppstjarna heimsins og varð fyrstu til að fara beint á toppinn á bandaríska breiðskífulistanum Bilboard, já og fyrsta konan komst á topp Mount Everest! Við endum svo þessa yfirreið árið 1985 en það var árið sem menn uppgötvuðu gat á ósonlaginu. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Komiði sælir ágætu hlustendur og velkomin í Tímaflakkið. Við tökum fyrir þessa vordaga árin 1957, þegar Þorsteinn Jónsson flugstjóri flutti til Kongó í leit að gulli og grænum skógum eins og hann sagði i Morgunblaðinu og 1967 - en þá var fyrsta íslenska sjónvarpsleikritið frumsýnt. Það hét Jón gamli og var eftir Matthías Jóhannesen. Þaðan höldum við til 1977 en þá auglýstu Flugleiðir nýjan áfangastað - París og við endum svo 1987 þegar John Travolta skellti sér í flugferð til Íslands með fríðu föruneyti en eins og áður sagði ætlum við að byrja á að fara 63 ár aftur í tímann..
-
Komiði sælir kæru hlustendur - þá höldum við áfram að flakka um fortíðina. Árið 1954 er fyrsta árið sem við heimsækjum í dag og að sjálfsögðu höldum við okkur við fyrstu vikuna í maí. Þá hafði skipaútgerð ríkisins blandað sér í fermingagjafabransann og auglýsti: "Góð fermingargjöf er það að bjóða fermingarbarninu ferð með strandferðaskipi kringum land í fylgd með fróðum ættingja eða leiðsögumanni.“ Það væri fróðlegt að vita hvort einhver hefur fengið slíka ferð í afmælisgjöf - ja eða fermingagjöf! Hin árin sem heilsum upp á eru 1964, 1974 og svo 1984 sem er auðvitað hið dramatíska ár sem George Orwell skrifaði um tæpum 70 árum fyrr. En nú höldum við af stað og eins og áður sagði þá byrjum við á árinu 1954. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Sæl öll - gleðilegt sumar. Bergsson og Blöndal sem heilsa sérlega sumarleg að þessu sinni. Annað í ljósum gaberdínbuxum og hitt í léttri poppínkápu sem hæfir þegar haldið aftur til fortíðar. Árin sem við heimsækjum í dag eru 1950, 1960, 1970 og 1980 og svo ætlum við aðeins að stelast til að daðra örlítið við árið 1990. Örlítið daður hefur nú aldrei skaðað neitt - og árið 1990 var merkisár fyrir margra hluta sakir - t.d. var Hubble sjónaukinn sendur af stað út í geiminn þann 24.apríl það ár og þar er hann enn ? þrjátíu árum síðar. En kæru vinir - eins og alltaf byrjum við á því ári sem er lengst í burtu. Árinu 1950. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02
-
Bergsson og Blöndal heilsa og bjóða upp á enn eitt tímaflakkið og grúskum í því sem gamalt er og tilheyrir þessari þriðju viku aprílmánaðar. Árin sem urðu fyrir valinu í dag eru: - fæðingarár Sigurðar Sigurjónssonar, Steingríms J Sigfússonar, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur - Diddúar, Guðmundar Árna Stefánssonar og Einars Kárasonar sem er þá árið 1955 og þaðan höldum við svo til ársins 1965 sem er t.d. fæðingarár Bjarkar Guðmundsdóttur. Í seinni hluta þáttar eru það svo árin 1975en það er t.d. fæðingarár knattspyrnukappanna Árna Gauts Arasonar og David Beckham - og svo endum við á fæðingarári Halldórs Laxness Halldórssonar, Dóra DNA, 1985 Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Þá höldum við af stað í enn einn leiðangurinn í tíma og rúmi og þetta er síðasti þáttur fyrir páska. Við höldum okkur við fyrstu daga aprílmánaðar og árin sem við kíkjum á í dag eru 1958, 1968, 1978 og 1988 enda fínustu ár allt saman og viðburðarík og við byrjum auðvitað á því elsta - 1958 Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Bergsson og Blöndal leggja enn af stað í tímaflakk í þessari 13 viku ársins 2020 en við ætlumeins og venjulega að fara aftur í tímann. Við skoðum árin 1956, 1966, 1976 og 1986 og við sögu koma 10 sekúndur af heimsfrægð í Bláa lóninu, æsispennandi uppboð í tollinum, morgunleikfimi eins og hún var stunduð á Íslandi í 25 á og sveitarómantík í barnatímanum en þar byrjum við einmitt árið 1956 Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Já þá skal haldið af stað í tímaflakkið á tímum veiruvarna og árin okkar eru 1953, 1963, 1973 og 1983 og það kemur í ljós að smitsjúkdómar voru líka stórmál á þeim árum. Árið 1953 voru það berklarnir og árið 1963 voru sjómenn í sóttkví vegna inflúensu en árið 1973 voru menn meira að velta fyrir sér næstu skrefum vegna goss í Vestmannaeyjum og árið 1983 var varað við að heilbrigðiskerfi vesturlanda myndu hrynja ef ekki væri tekið á nýrri tegund sjúkdóma. Meira um það síðar í þættinum En byrjum á rómantískum göngutúr á Strikinu.. Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Tímavélin hefur verið sett í gang og haldið skal til áranna 1951, 1961, 1971 og 198. Upphaf þessara áratuga var sannarlega mismunandi. Eða þannig.. Í upphafi þess sjötta var t.d. Kóreustríðið í fullum gangi en því lauk með skiptingu landsins í norður og suður Kóreu. Í upphafi þess sjöunda var allt vitlaust í kringum Kúbu og margir óttuðust kjarnorkustríð en í upphafi áttunda áratugarins voru stórveldin upptekin við að slást í Víetnam og í upphafi níunda áratugarins var allt í hers höndum í Kambódíu. Já það er alltaf verið að slást en það ætlum við Bergsson og Blöndal ekki að gera. Hér verður friður og ró, kannski soldið stuð og jafnvel rómantík! Við skellum okkur til marsmánaðar 1951... Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
-
Tímaflakk er það ágætu hlustendur og dagurinn er 8 mars. við kíkjum til áranna 1959, þegar Bretland ákvað að veita Kýpur sjálfstæði, heppnir þeir! 1969 - Þegar fyrsta tilraunaflug Concorde fór fram og það endaði nú ekki vel. 1979- Þegar Skotar samþykktu heimastjórn en með naumindum þó! og 1989 þegar sala bjórs var aftur leyfð á Íslandi. Skál fyrir því! Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2
- Mostrar mais