Reproduzido

  • Heill þáttur um eitt af eftirminnilegustu og dáðustu gítarsólóum þungarokkssögunnar... Því eins og Snorri Barón sagði: „Gítarsóló eru framtíðin.“ Þetta vita öll.

    Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér stórleik og margra hæða músíkölsku sólói Alex Skolnick (Testament, Savatage, Metal Allegiance, Trans-Siberian Orchestra) í titillagi plötunnar Practice What You Preach (1989) með Testament.
    Þeim til fulltingis voru Sigurgeir Sigmundsson (Drýsill, Gildran, Big River Band o.fl.), Þráinn Árni Baldvinsson (Skálmöld, Kalk, Klamedía X) og Sigurjón Óli Gunnarsson (Devine Defilement, Epidermal Veil, Holdris et al).

    Á einhvern lífrænan máta þróast þátturinn yfir í minningar um og velþóknun á Björgvini Gíslasyni, gítarleikara og mannvin, en hann lést fyrir skemmstu. Blessuð sé minning hans.

    Tónlistin í þættinum:
    - SEVEN SPIRES "Almosttown" (2024)
    - PELICAN "Á sprengisandi" (1974)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Það var eitthvað við Andlát. Þetta tiltölulega stutta tímabil þar sem hróður þeirra óx og óx og ekkert gat þá stöðvað. Hvernig tónlist bunaði úr þeim var síðan það sem fólkið hengdi sig fyrst og fremst á. Upp úr þessu spruttu vináttur og vinahópar hvaðanæva af Stór-Höfuðborgarsvæðinu og Mosfellsbæ bundust skapandi böndum.

    Hver fílar ekki risastór og grípandi riff sem grúva eins og djöfullinn? Erindi sem dauðarokka líkt og við einhverja blóðtjörn á Náströnd? Svo er það haltu-kjafti-ekkert-helvítis-rugl trommuleikur og bassi sem gætir þess að það sé malbikað þétt og vandlega yfir lifendur og liðna.
    Samlíkingar? Það er alveg hægt að fara þangað líka. Cannibal Corpse að sprengja fyrir jarðgöngum ásamt þýsku geðsjúllunum í Acme. Já, já. Aftershock inn í brennandi vöruskemmu á meðan þeir spila allra hörðustu riff Pantera. Því ekki það?!?Hvað sem því líður þá eru hjólför Andlát enn greinileg eftir öll þessi ár.


    Andlát skipuðu (meðal annarra):

    Bjarki Fannar Atlason (Finnegan)
    Valur Árni Guðmundsson (Ask The Slave, Squirt)
    Haukur Valdimar Pálsson (Myra, Squirt)
    Sigurður Trausti Traustason

    Magnús Örn Magnússon (Gyllinæð, Stegla)

    Tónlist í þættinum:
    What Was Intended - ANDLÁT (Mors Verum, 2004)
    Threatened - LIVING SACRIFICE (Reborn, 1997)
    Broken - MARTYR A.D. (The Human Condition in Twelve Fractions, 2000)
    The Martyr's Blood - HEAVEN SHALL BURN (Whatever It May Take, 2002)

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.