Episódios
-
Halldór Armand hefur verið að horfa á nýjustu þáttaröð breska heimildarmyndagerðarmannsins Adam Curtis, sem nefnist Can?t Get you out of my head. Þessi 8 klukktutíma vídjóesseyja Curtis gerir tilraun til að greina tilurð samtímans í gegnum tilfinningar og persónulegar sögur fólks. Halldór tengir sögu Curtis við klassísk þemu um sjálfið og farsæld, hann vitnar líka í atferlissálfræðinginn Daniel Kahneman og Krösus Lýdíukonung.
-
Halldór Armand fjallar að þessu sinni um þá undarlegu trú mannsins að heilbrigð skynsemi sé gagnlegt leiðarljós í tilverunni. Hann segir þetta bábylju, þvert á móti eigum við að reyna að fylgja óheilbrigðri skynsemi.
-
Estão a faltar episódios?
-
Halldór Armand Ásgeirsson fylgdist náið með hinni stór-undarlegu atburðarás þegar smáfjárfestar á umræðusíðunni Reddit fóru í hart við vogunarsjóði á Wallstreet - og vörpuðu um leið ljósi á það hvernig stjórnmál samtímans hafa tekið 90 gráðu snúning.
-
Halldór Armand rifjar upp dularfullt atvik frá unglingsárum sínum, atvik sem sannfærði hann um að glæpir borgi sig.
-
Halldór Armand Ásgeirsson flytur okkur sinn fyrsta pistil á nýju ári þar sem hann veltir fyrir sér ástandinu í Bandaríkjunum um þessar mundir. Aþenski stjórnspekingurinn Sólon og búsáhaldabyltingin koma meðal annars við sögu.
-
Í pistli vikunnar fjallar Halldór Armand um fegurðina í því að vera byrjandi og það þegar hann hitti Tony-verðlaunahafann Lin-Manuel Miranda
-
Halldór íhugar frelsið eftir heimsfaraldur og fjallar um gagnrýni ítalska heimspekingsins Giorgio Agamben á covid-pólitík.
-
Halldór fjallar um hlutverk forseta Íslands og eitt mesta hitamálið í íslensku samfélagi um þessar mundir: nýju stjórnarskrána, en hann segir engu máli skipta hvaða skoðun við höfum á þessu plaggi.
-
Hvernig munum við minnast sumarsins sem leið? Í pistli dagsins fjallar Halldór um sumar veirunnar út frá skáldsögunni Herbergi Giovannis eftir bandaríska rithöfundinn James Baldwin.
-
Halldór Armand Ásgeirsson snýr aftur úr sumarfríi. Þessa vikuna er hann að hugsa um gamla kennarann sinn og núverandi forseta mannréttinda dómstóls Evrópu, Róbert Spanó, sem hefur mikið verið gagnrýndur að undanförnu fyrir heimsókn sína til Tyrklands.
-
„Ég stend sjálfan mig að því að grafa ofan í mold sögunnar með berum höndum, krafsa og fálma eins og villimaður, í leit að einhverju sem ég skil ekki,“ segir Halldór Armand Ásgeirsson.
-
Halldór Armand veltir fyrir sér viskunni og þjáningunni í pistli sínum þessa vikuna. Æskilos, Job og Bobby Kennedy koma meðal annars við sögu í pistlinum.
-
Eftir að hafa gengið framhjá auglýsingamynd af sígarettulausum Bubba Morthens á Borgarleikhúsinu veltir Halldór fyrir sér listrænu frelsi á tímum læktakkans.
-
Ég vona að við mótmælum morðinu á George Floyd, við stöndum saman og höfnum kerfislægum rasisma um allan heim og við mótmælum hatursþjóðfélaginu,“ segir Halldór Armand Ásgeirsson sem telur að heimsfaraldurinn hafi magnað upp það óréttlæti sem fyrir var í samfélögum.
-
Halldór Armand flytur pistil um ólíka siði mismunandi mannlegra samfélaga, meðal annars ólíkra greftrunarsiði eins og þeir birtast í Rannsóknum Heródótusar.
-
Að þessu sinni fjallar Halldór um tónlistarmann sem samdi nokkur fræg lög.
-
„Heimurinn yrði ekki uppfullur af sannleika, þótt stjórnvöld myndu banna lygar. Þegar á botninn er hvolft er sannleikurinn nefnilega mjög illviðráðanlegt fyrirbæri,“ segir Halldór Armand sem geldur varhug við starfshóp þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu.
-
„Læktakkinn og þau hreyfilögmál sem stýra athyglishagkerfi nútímans munu leggja margt í rúst,“ segir Halldór Armand sem hefur miklar áhyggjur af því hvernig upplýsingar dreifa sér í kapítalískum og netvæddum heimi.
-
Halldór hugleiðir skatta, lýðræðið og hagkerfi sem riðar til falls.
-
Halldór finnur merkingu í biðinni: „Spurðu þig ekki hvort leikurinn verður skemmtilegur heldur hvort grasið sé grænt.“
- Mostrar mais