Episódios
-
Viðmælandi þáttarins er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku sem er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og byggir á grunni Hitaveitu Suðurnesja sem var stofnuð í árslok 1974. HS Orka á og rekur fjórar virkjanir, tvær jarðvarmavirkjanir og tvær vatnsaflsvirkjanir. Það starfa um 90 manns hjá fyrirtækinu og veltir fyrirtækið um 16 ma. kr.
Tómas er fæddur árið 1968 og alinn upp á Seltjarnarnesi. Hann gekk í MR og kláraði BS próf í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og síðar meistaragráðu í skipulagsverkfræði frá Cornell University í Bandaríkjunum.
Tómas starfaði um átta ára skeið sem framkvæmdastjóri hjá Norðuráli. En í ársbyrjun 2004 flutti hann sig til Alcoa þar sem hann starfað um sextán ára skeið, fyrst sem forstjóri Alcoa á Íslandi, svo sem forstjóri í Evrópu og Miðausturlöndum og loks aðstoðarforstjóri Alcoa á heimsvísu. Hann tók við starfi forstjóra HS Orku í ársbyrjun 2020. Tómas Már hefur einnig setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og samtaka, m.a. sem formaður Viðskiptaráðs Íslands 2009-2012, stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins 2005-2011, stjórn Íslandsbanka, Cargow Thorship, DTE og Genís. Einnig var hann stjórnarmaður í samtökum evrópskra álframleiðenda og í stjórn Business Europe.
Þátturinn er kostaður af Sólar, Arion og KPMG.
-
Viðmælandi þáttarins er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, stofnandi og meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi. Lindex er sænsk verslunarkeðja sem selur kven- og barnaföt og Gina Tricot er sænsk tískukeðja sem selur kvenmannsföt. Lóa er fædd árið 1979 og alin upp í Flóanum og á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og lauk síðan BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Eftir útskrift vann hún sem verkefnastjóri um tíma hjá Innovit, sem hélt m.a. utan um viðskiptaáætlanakeppnina Gulleggið. Lóa flutti síðan til Svíþjóðar ásamt manni sínum Alberti Þór og tveimur sonum og stofnaði verslunina Emil og Línu við eldhúsborðið sem seldi sænskar vörur á Íslandi. Þau fengu svo hugmyndina að fá sérleyfi fyrir Lindex á Íslandi og eru verslanirnar nú um tíu talsins. Seinna fengu þau svo um sérleyfi fyrir Gina Tricot og eru verslanirnar nú um fjórar talsins. Þau hafa nú nýverið tekið við rekstri barnafataverslunarinnar Dimmalimm á Laugavegi og samhliða því tryggt sér sérleyfi fyrir spænska barnafatamerkið Mayoral og vinnur Lóa þessa dagana í að vekja upp Lína og Emil vörumerkið og koma upp eigin framleiðslu á barnafötum.
Þessi þáttur er í boði Arion, Sólar og KPMG. -
Estão a faltar episódios?
-
Viðmælandi þáttarins er Benedikt Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf. Lauf er þekktast fyrir framúrstefnulega hjólagaffla sína, en framleiðir nú og selur malar-, götu- og fjallahjól um allan heim. Benedikt er fæddur árið 1984 og alinn upp í Grafarvoginum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk síðan BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í iðnaðarverkfræði frá Columbia háskóla í New York. Benedikt starfaði í eitt ár hjá Össuri við hönnun gervifóta, þar sem hann fékk hugmyndina að Lauf-gafflinum og stofnaði Lauf ásamt æskuvininum Guðbergi Björnssyni. Fyrirtækið veltir nú um 1.5 milljörðum íslenskra króna og starfa um 25 manns hjá fyrirtækinu. Lauf er þessa dagana að útvíkka vörulínu sína og stefnir þannig að því að tífalda umsvif sín á næstu árum.
Þessi þáttur kostaður af Sólar og KPMG.
-
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa Siríus. Sælgætisgerðin var stofnað árið 1920 og framleiðir og selur súkkulaði og sælgæti en árið 2021 var fyrirtækið selt til norska matvæla samsteypunnar Orkla.
Sigríður Hrefna er fædd árið 1977 og ólst upp í Breiðholtinu í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Reykjavík og lauk síðan embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Copenhagen Business School í Danmörku. Sigríður hefur gengt ýmsum störfum í atvinnulífinu, m.a. var hún framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka þar sem vann m.a. við að byggja upp stafræna vegerð bankans. Áður var hún framkvæmdastjóri smásölusviðs Olís, forstöðumaður hjá Arion, framkvæmdastjóri hjá Straumi og hjá SPV sparisjóði og þar áður framkvæmdastjóri Atlas Ejendomme.
Sigríður Hrefna hefur setið í stjórn ýmissa fyrirtæki t.d. hjá Reginn, Áltaki, Next, Ígló og Indó, Whistle, Landsbréfum og formaður stjórnar Emessís, SMI ehf, Sjónlags hf., Björg investment fund, Billetlugen, Creatrix og í fjárfestingaráði Arev N1 og Thule vísissjóðs.
Þátturinn er kostaður af KPMG og Sólar.
-
Viðmælandi þáttarins er Finnur Oddsson, forstjóri Haga. Hagar er samstæða fyrirtækja sem starfa á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði og starfa um 2.600 starfsmenn hjá samstæðunni. Dótturfélög í samstæðu Haga eru Hagar verslanir ehf., (Bónus, Hagkaup og Aðföng), Olís ehf., Bananar (dreifingaðili á grænmeti og ávöxtum), Noron (Zara), Eldum rétt og Stórkaup heildverslun.
Finnur er fæddur árið 1970 og ólst upp Seljahverfinu. Finnur gekk í Verzlunarskóla Íslands og lauk BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Finnur var á árunum 2013 til 2020 forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. og starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbyggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórn ýmissa dótturfélaga Haga en hefur áður setið í stjórn ýmissa dótturfélaga Origo sem og Orf líftækni, Distica og Sling
Þátturinn er í boði Indó og Skaga.
-
Viðmælandi þáttarins er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect, sem tengir saman starfsmenn fyrirtækja við ólíka sérfræðinga í velferð og geðheilbrigðisþjónustu. Í dag býður Kara Connect upp á nýja vöru, velferðartorg fyrirtækja, sem getur nýst stjórnendum vel til að styðja starfsfólk við ólíkar áskoranir í lífi og starfi. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og borgarstjórn en frumkvöðlastörf hafa átt hug hennar allan síðastliðin ár. Þorbjörg gekk í Verzlunarskóla Ísland og lauk síðan B.A. í uppeldis og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og síðar Master í námssálfræði frá University of Washington. Þorbjörg er fædd 1972, ólst upp í smáíbúðahverfinu í Reykjavík og gekk í Verslunarskóla Íslands og kláraði síðan BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og master í námssálfræði frá University of Washington í Seattle þar sem hún einbeitti sér að heilaþroska barna og ungmenna. Þorbjörg hefur búið í Bandaríkjunum, Frakklandi, á Spáni og í Kaupmannahöfn en líður alltaf best á Íslandi.
Þátturinn er kostaður af Skaga og Indó.
-
Viðmælandi þáttarins er Finnur Pind, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Treble Technologies, sem er fyrirtæki sem framleiðir hugbúnað til hljóðhermunar (e. sound simulation). Hugbúnaður Treble er nýttur af fyrirtækjum út um allan heim í bygginga-, tækni- og bílageirum til þess að hanna betri hljóðupplifanir og draga úr hávaða, meðal annars af mörgum af stærstu tækni- og verkfræðifyrirtækjum heims. Finnur er fæddur árið 1986 og uppalinn í hlíðunum í Reykjavík. Hann er með BS gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og MS próf og doktorsgráðu í hljóðverkfræði (e. acoustics engineering) frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU). Áður en Finnur stofnaði Treble starfaði hann um árabil sem forritari og ráðgjafaverkfræðingur. Á sínum yngri árum var Finnur einnig virkur tónlistarmaður í jaðarrokkssenu Reykjavíkur.
Þessi þáttur er kostaður af Indó og Skaga.
-
Viðmælandi þáttarins er Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate Partners (AREP) þar sem hún er yfir fjáröflun og fjárfestatengslum. Fyrirtækið stýrir framtakssjóðum sem fjárfesta í ákveðnum tækifærum í fasteignum á lægra miðstigi markaðarins (e. lower middle market) og hefur nú yfir $3,5 milljarða af fasteignum í stýringu. Margrét er alin upp í Bandaríkjunum og á Íslandi, gekk í Menntaskólann í Kópavogi en lauk síðan BS í viðskiptafræði, með aukagrein í alþjóðlegum öryggis- og ágreiningsúrlausnum (e. International Security and Conflict Resolution) frá San Diego State University.
Margrét starfaði áður sem framkvæmdastjóri (e. Managing Director) hjá Lateral Investment Management framtakssjóði (e. Private equity) og bar ábyrgð á vöruþróun, stefnumótun og fjáröflun en fyrirtækið var með um $800 milljónir undir stýringu en Margrét var í stofnendateymi sjóðsins. Lateral veitir vaxtarfé til fyrirtækja á miðstigum (e. middle market) með áherslu á B2B tæknifyrirtæki. Áður en hún gekk til liðs við Lateral var Margrét yfir fjárfestatengslum hjá framtakssjóði sem fjárfesti í fasteignum og vann hjá Bainbridge Capital, ráðgjafarfyrirtæki í samruna og yfirtökum (m&a) með aðsetur í La Jolla, Kaliforníu.
Þátturinn er kostaður af Indó og Skaga.
-
Viðmælandi þáttarins er Tryggvi Björn Davíðsson, meðstofnandi Indó sparisjóðs. Indó kom inn á fastmótaðan bankamarkað í byrjun síðasta árs og hefur hrist upp í markaðnum með því að bjóða upp á nýja einfalda bankaþjónustu á góðum kjörum. Tryggvi er fæddur árið 1973 og ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann gekk í Menntaskólann á Akureyri og lauk B.S. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.S. gráðu í fjármálum frá Université Sciences Sociales í Frakklandi og MBA gráðu frá INSEAD í París. Tryggvi á að baki áratuga reynslu á fjármálamarkaði, bæði hérlendis sem og erlendis og hefur búið og starfað í Frakklandi, Indónesíu, Singapore og Bretlandi.
Þessi þáttur er í boði Skaga og Indó.
-
Viðmælandi þáttarins Sindri Már Finnbogason, sem er sjálflærður forritari, en hann byrjaði að forrita á Sinclair Spectrum aðeins 7 ára gamall. Hann kláraði ekki framhaldsskóla heldur fór að vinna sem forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Innn sem þróaði vefumsjónarkerfið LiSA. Árið 2003 stofnaði hann Miði.is sem seldi miða á alla viðburði á Íslandi í mörg ár en Miði.is keypti svo miðasölufyrirtækið Billetlugen í byrjun árs 2008 og flutti Sindri til Kaupmannahafnar og var þar í fimm ár þangað til hann tók sér ársfrí frá miðasölubransanum og stofnaði svo Tix.is, árið 2014, sem sérhæfir sig í miðasölulausnum fyrir viðburðarhaldara á borð við menningar- og viðburðarhús. Tix varð svo að Tixly og í dag starfa rúmlega 50 manns hjá fyrirtækinu og er miðasölukerfi Tixly komið í notkun í 14 löndum og með skrifstofur í 9 löndum.
Þátturinn er í boði Indó og Skaga.
-
Viðmælandi þáttarins er Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Hann er fæddur árið 1979 í Reykjavík og er ættaður úr Dölunum á Vesturlandi en ólst upp í Seljahverfinu í Reykjavík. Haraldur gekk í Menntaskóla Reykjavíkur og þaðan lá leiðin í Háskólann í Reykjavík þar sem hann lauk BS prófi í viðskiptafræði. Hann lauk svo MBA-gráðu frá IESE Business School og jafnframt prófi í verðbréfaviðskiptum.
Haraldur hefur langa reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Hann er einn af þremur stofnendum Fossa fjárfestingarbanka og var jafnframt forstjóri bankans árin 2015 til 2023. Á árunum 2011 til 2015 gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta Straums fjárfestingarbanka hf. og átti jafnframt sæti í framkvæmdastjórn bankans á sama tímabili. Á árunum 2007 til 2010 starfaði hann sem framkvæmdastjóri fjárstýringar Exista hf. og var forstöðumaður fjármögnunar hjá sama félagi.
Þessi þáttur er í boði Indó, Skaga og Taktikal.
-
Viðmælandi þáttarins er Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (CCEP). CCEP er leiðandi fyrirtæki í neytendavöru á heimsvísu og er með starfsemi í 30 löndum í Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Starfsmenn fyritækisins eru 45 þúsund og þjónar fyrirtækið yfir 600 milljón neytendum.
Anna Regína er fædd árið 1982 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og kláraði BS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf frá DTU í Kaupmannahöfn. Fyrstu árin eftir útskrift vann Anna við arðsemisgreiningar, kostnaðargreiningar og verkefnastjórn í erlendum jarðvarmaverkefnum. Frá árinu 2012 hefur Anna Regína unnið hjá Coca-Cola á Íslandi í hinum ýmsu störfum, m.a. forstöðumaður hagdeildar, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og framkvæmdastjóri sölusviðs áður en hún tók við sem forstjóri félagsins árið 2023.
Þessi þáttur er kostaður af Skaga, Indó og Taktikal.
-
Viðmælandi þáttarins er Ægir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Aranja og einn stofnanda Hopp. Ægir er fæddur árið 1985 og ólst upp á Seltjarnarnesi og á Landsbyggðinni. Hann flutti að heiman eftir 10. bekk til að fara á tölvubrautina í Iðnskólanum og hélt áfram í Háskólann í Reykjavík þar sem hann kláraði B.S. í tölvunarfræði. Ægir vann að netbönkum Landsbankans eftir útskrift og síðan hjá Red Gate í Bretlandi áður en hann flutti aftur til Íslands og stofnaði Aranja árið 2014 með Eiríki Heiðari Nilssyni.
Aranja er stafræn stofa og venture studio sem sérhæfir sig í stafrænum vörum og hefur Ægir verið framkvæmdastjóri þar í 10 ár. Ægir er einnig meðstofnandi Hopp, sem er samgöngulausn fyrir borgir, einna þekktust fyrir rafskúturnar og Hopp farsímalausnina, en fyrirtækið byrjaði sem verkefni innan Aranja árið 2019. Hopp hefur sótt sér fjármagn frá íslenskum og erlendum fjárfestum og eru rafskúturnar og hugbúnaðarlausnin nú í boði í nokkrum löndum.
Ægir skipuleggur einnig meistaranám í framendaforritun í háskóla í Barcelona þar sem hann kennir einnig einstaka áfanga.
Þátturinn er kostaður af Arion.
-
Viðmælandi þáttarins er Halla Tómasdóttir, forstjóri B-Team og frambjóðandi til forsetakosninga Íslands árið 2024. B-Team eru samtök alþjóðlegra leiðtoga sem vinna saman að sjálfbærni, jafnrétti, jöfnuði og aukinni ábyrgð í forystu og viðskiptum. Halla er fædd árið 1968 og ættuð af Vestfjörðum og úr Skagafirði en alin upp á Kársnesinu í Kópavogi. Hún er rekstrarhagfræðingur frá Auburn University of Montogomery og með MBA gráðu frá Thunderbird School of Global Management í Bandaríkjunum. Hún stundaði einnig um nokkurra ára skeið nám til doktorsgráðu við Cranfield University í Bretlandi þar sem hún lagði stund á rannsóknir í leiðtogafræði. Halla hóf sinn feril hjá stórfyrirtækjunum Mars og Pepsi Cola þar sem hún vann í mannauðsmálum. Eftir að hún kom aftur til Íslands tók Halla tók virkan þátt í uppbyggingu Háskólans í Reykjavík þar sem hún leiddi meðal annars fyrstu ár Opna Háskólans og verkefnið, Auður í krafti kvenna, ásamt því að vera ein af stofnendum Þjóðfundsins árið 2009. Hún gegndi fyrst kvenna framkvæmdastjórastöðu Viðskiptaráðs á árunum 2006-7, og var ein af stofnendum Auðar Capital, fyrsta fjármálafyrirtæki í forystu kvenna sem lagði áherslu á mannleg gildi og ábyrgð í fjárfestingum. Halla hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og er vinsæll fyrirlesari á alþjóðlegum vettvangi ásamt því að hafa gefið út bókina, Hugrekki til að hafa áhrif, árið 2023.
Þátturinn er kostaður af Krónunni, Icelandair og Arion banka.
-
Viðmælandi þáttarins er Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Carbon Recycling International (CRI). CRI hefur þróað leiðandi tæknilausn á heimsvísu sem gerir viðskiptavinum þeirra kleift að framleiða metanól á umhverfisvænan hátt úr koltvísýringi og vetni, sem síðan er hægt að nýta sem grænan orkugjafa eða í efnavörur. Í dag starfa rúmlega þrjátíu manns hjá fyrirtækinu en nýir fjárfestar lögðu félaginu til $30m árið 2023 til að fjármagna vöxt þess. Björk er fædd árið 1983 og ólst upp í 104 Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Björk hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri og meðeigandi Reykjavík Backpackers, rekstrarstjóri Bus Hostel Reykjavík og Reykjavík Terminal og stofnandi og framkvæmdastjóri Made in Mountains.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion.
-
Viðmælandi þáttarins er Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi og framkvæmdastjóri Öldu. Alda er hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að meta og auka fjölbreytileika og inngildingu með örfræðslu, inngildingarkönnun, aðgerðaráætlun og mælaborði. Alda hugbúnaðurinn fór í loftið haustið 2023 og var í lok þess árs valinn á lista ráðgjafafyrirtækisins Gartner yfir leiðandi tæknilausnir sem bjóða upp á mælikvarða og markmiðasetningu í fjölbreytileika og inngildingu .
Þórey var áður meðeigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu Capacent og vann m.a. við ráðgjöf í stjórnun og stefnumótun en þar leiddi hún mörg helstu fyrirtæki og stofnanir á Íslandi í gegnum verkefnið Jafnréttisvísi. Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar. Hún hefur tekið þátt í margs konar félagsstörfum og stofnaði m.a. V-daginn, sat í stjórn UN Women, íslenskri landsnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, í varastjórn Jafnréttissjóðs og í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Hún stofnaði einnig umboðsskrifstofuna Eskimo Models og Ólöfu ríku, fyrirtæki sem framleiddi hönnunarleikföng og barnabækur.
Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
-
Viðmælandi þáttarins er Garðar Stefánsson, meðstofnandi og forstjóri matvælafyrirtækisins GOOD GOOD. Fyrirtækið framleiðir m.a. sykurlausar sultur, sætuefni og súkkulaði- og hnetusmjör. GOOD GOOD hefur safnað um $25m+ frá fjárfestum og sækir nú fram á Bandaríkjamarkaði. Garðar er fæddur árið 1984 og ólst upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og Master gráðu í Upplifunarhagkerfinu (e. Experience Economy) frá Háskólanum í Árósum. Garðar var áður meðstofnandi og framkvæmdastjóri saltframleiðslufyrirtækisins Norður Salt og meðstofnandi Saltverks Reykjaness ehf.
Þessi þáttur er í boði Arion, Icelandair og Krónunnar.
-
Viðmælandi þáttarins er Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns, fasteignafélags sem er skráð á íslenska aðalmarkaðinn. Jón er fæddur árið 1985 og ólst upp í Hafnarfirðinum. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í byggingaverkfræði frá DTU háskólanum í Danmörku. Jón hefur starfað sem verkfræðingur hjá Mannviti, sérfræðingur í eignastýringu hjá Kviku og forstöðumaður hjá GAMMA, þangað til hann tók við forstjórastarfi Kaldalóns.
Þátturinn er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
-
Viðmælandi þáttarins er Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Domino’s. Birgir er fæddur árið 1972 og ólst upp á Borgarnesi og fór síðan í Menntaskólann á Akureyri. Hann flutti til Reykjavíkur og lauk BS í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Pompeu Fabra Barcelona. Birgir starfaði í 10 ár sem forstjóri Domino’s á Íslandi og 13 ár sem “Group Managing Director” hjá Strax en hann sat einnig í stjórn félagsins. Fyrirtækið framleiðir og dreifir aukahluti fyrir farsíma.
Birgir hefur starfað sem framkvæmdastjóri Cintamani og fjárfest og setið í ýmsum stjórnum m.a. sem stjórnarformaður Billboard/Dengsa/BBI, auglýsingafyrirtækis, sem var selt til Símans núna í janúar 2024. Hann hefur einnig setið í stjórnum Domino’s í Noregi, veitingastaðarins Joe & the Juice, afþreyingarfyrirtæksins Lava Show, tæknifyrirtækjanna Andes og Prógramm og leitarsjóðsins Leitar Capital Partners. Ásamt því að taka þátt í fasteignamarkaðnum í gegnum EB Invest.
Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
-
Viðmælandi þáttarins er Jón Björnsson, forstjóri Origo. Origo er samstæða þjónustufyrirtækja í upplýsingatækni með um 500 starfsmenn og býður fyrirtækið upp á þjónustu við rekstur og innviði, hugbúnað og notendabúnað. Jón er fæddur árið 1968 og ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Verzlunarskóla Íslands og er lauk síðan B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Rider University í New Jersey. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Festi og Krónunnar frá 2014 en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Magasin du Nord og Högum frá 2002. Jón situr m.a. í stjórn netverslunarinnar Boozt.com, Dropp og Brauð & Co.
Þátturinn er í boði Arion, Krónunnar og Icelandair.
- Mostrar mais