Эпизоды
-
Á árunum 2000-2010 fengu um 400 íslenskar konur brjóstafyllingar frá framleiðandanum Poly Implant Protése eða PIP brjóstapúðar. Það sem þessar 400 konur áttu sameiginlegt var að þær vissu ekki að notað var iðnaðarsílikon í brjóstapúðana í staðin fyrir læknisfræðilegt sílikon.
-
Helena Jónsdóttir er mögnuð fyrirmynd sem hefur farið í um 8 verkefni fyrir Lækna án landamæra. Hún vann á spítala í Afganistan þangað til eina nóttina þegar hún fékk tilkynningu um neyðarrýmingu af því að bandaríski herinn var að fara að sprengja spítalann upp. Hún vann í Cairo á viðbragðsmiðstöð fyrir þolendur kynferðisofbeldis og pyntinga. Hún vann í Yemen á ungbarnadeild þar sem hungursneyð varð ungabörnum að falli. Helena lýsir því hvernig þú ert undirbúin áður en þú ferð í verkefni, hvernig Læknar án landamæra virka, hvernig fjölskylda og vinir heima díla við þetta og margt annað. Þið getið fundið hana á Linkedin og fengið ráðleggingar hjá henni ef þið hafið áhuga á að vinna í mannúðar-bransanum. Þið getið líka fundið upplýsingar um fyrirtækið hennar á: https://mentalradgjof.is/
-
Пропущенные эпизоды?
-
Natan kíkti í heimsókn til mömmu sinnar í nokkra daga. Þau áttu góðan tíma saman, elduðu góðan mat, hlógu og nutu samveru hvors annars. Síðustu nóttina þá upplifði Natan það sem hann þekkti sem Sleep paralysis. En var þetta sleep paralysis eða var þetta eitthvað annað? Endilega túniði inn með okkur stöllum og komiði með okkur í langferð um draugaslóðir. Ps. Sá einhver Kristjönu í Landanum?
-
Það þurfti bara eitt screenshot af Snap Maps til að vinda ofanaf hrottalegu morði á hjónum í blóma lífsins. Say no more.Myndir á instagram!
-
Nasubi var tvítugur grínisti frá Japan sem þurfti að þola hræðilega einangrun í 15 mánuði. Hann var nýútskrifaður úr menntaskóla og var að reyna að meika það í skemmtanabransanum, þegar hann fór í prufur fyrir raunveruleikaþátt sem átti eftir að breyta lífi hans. Nasubi þurfti að þola hræðilega kúgun og misrétti, en hinum megin við sjónvarpskjáinn hló og skemmti sér heil þjóð af því að jú, öll Japan fylgdist með honum.Myndir og myndbönd á Instagram!!
-
Elisabeth Finch var einn af 17 handritshöfundum Greys Anatomy en á meðan hún skrifaði fyrir Greys gekk hún í gegnum mikil veikindi og áföll í persónulega lífinu og notaði þau sem söguþráð í þættina. En var hún dauðvona?
Myndir og fleira á instagram!
-
International Girl watching society var í alvörunni til. Karlmenn hittust, fylgdu ákeðnum reglum og horfðu á stelpur. Það fór svo allt úr böndunum þegar ein super bomba mætti á Wall Street, 21 árs gömul stelpa sem gerði ekkert annað en að labba í vinnuna.Kíkið á instagram fyrir myndir - Já elskan
-
Ingibjörg er á faraldsfæti eins og vanalega og því er þátturinn símaþáttur en hann er samt ekki af verri endanum;r/LetsNotMeet: A place to read spine-tingling, unusual, terrifyingly true stories about people you never want to meet again.
-
Colonia Dignidad sem seinna fékk nafnið Bavaria Village var einangruð byggð í Chile sem leit út fyrir að vera paradís en þar sem hryllingur átti sér stað bakvið luktar dyr. Enginn komst þaðan út né inn, börn voru tekin af foreldrum sínum og ofbeldi, pyntingar og morð voru þar daglegt brauð. Maðurinn á bak við þetta var hrottalegur Þjóðverji sem flúði til Chile undan ásökunum um kynferðisofbeldi gegn börnum. Ekki missa af ferðalagi dagsins eða eins og Jón nokkur Ársæll sagði fyrr á dögunum, komiði með okkur.
-
MK-Ultra Project var verkefni á vegum CIA sem snerist um það að eyða algjörlega huga fólks og endurforrita hann. Meðferðirnar sem notaðar voru voru til dæmis að setja fólk í dá með ofskömmtun lyfja og spila fyrir þau á repeat "mamma þín hatar þig". Fórnarlömbin vissu ekki að þau væru tilraunardýr. Klikkað.
-
Ewa Wiśnierska var í svifvængjaflugi þegar hún lendir í ómögulegu uppstreymi þrumuskýs. Ewa finnur ísél á stærð við appelsínur dynja á sér og verður naumlega fyrir eldingum. Hún skýst ofar en skýin, missir meðvitund og frýs næstum í hel. Þetta er ótrúlega sagan af Ewu og hvernig hún barðist við að lifa af í skýjunum þar til….. Við stöllur erum mættar aftur á fóninn, í þetta skiptið erum við back for good. Við erum hættar að tjilla á sundlaugarbökkum en segjum frá afdrifaríkum síðastliðnum mánuði, eða frá því að við heyrðumst síðast. Við söknuðum ykkar.
-
Fyrir rúmu ári síðan, þann 25. febrúar, lentu 5 kafarar í stórslysi þegar þeir voru við störf í Karabískahafinu. Þeir mættu þennan morgunn alsaklausir í vinnuna en aðeins einn komst aftur heim til fjölskyldunnar sinnar. Video á Instagram - Já elskanVið hættum að spjalla á 36 mínútu ef þú nennir ekki að hlusta á ramblið í okkur.
-
🚨 Ekki fyrir viðkvæma - þessi þáttur inniheldur lýsingar á pyntingum, morði og barnaklámi.
Sharon Lopatka var með óvenjulegt blæti. Hún vildi ekkert meira en að fá hina endanlegu fullnægingu með því að vera pyntuð og drepin. Í þessum þætti gluggum við inn í heilan á Sharon og förum yfir það hvernig kynferðisleg löngun hennar þróaðist með árunum.
-
Melissu Highsmith var rænt aðeins 22 mánaðar gamallri. 51 ári síðar eða þann 28. nóvember síðastliðinn fannst hún. Myndir á instagram!
-
Ingibjörg fer yfir ótrúlegar histeríur í einum stuttum og sykursætum þætti. Það er svo sem ekkert meira um það að segja en þið eruð best takk bæ.
-
Lastu fyrirsögnina eins og við værum að öskra hana?Það er gott því við erum svona peppaðar að vera mættar aftur eftir langa pásu. Þessi pása var svo atburðarík að við ákváðum að við þyrftum að tileinka heilum þætti í gott spjall um hvað við vorum að bralla.
Its good to be back
-
Sjúkraliði eða hjúkrunarfræðingur? Skiptir ekki máli, hann gerði alltof mikið af hlutum sem hann átti alls ekki að gera og alltof margir frískir sjúklingar enduðu í öndunarstoppi þegar hann var á vakt. Tilviljun?
-
Hæ hæ stelpur! Þetta erum við stelpurnar í Já elskan. Þátturinn í dag fjallar um Þýska fjölskyldu sem hvarf sporlaust í Death Valley í Californiu árið 1996. 13 árum seinna kom í ljós hvað kom fyrir í raun og veru.
Matarsmökkunarmyndband á instagram!
-
Það er laugardagskvöld. Við stöllur keyptum okkur kínverskan mat, kveiktum á kertum og settumst við micinn. Í þessum þætti af Já elskan hlæjum að misförum hvor annarrar. Today I Fucked Up - okkar edition. Ha, var landsleikur?
-
Brynhildur Karlsdóttir er höfundur af Já elskan intro laginu, tónlistarkona, sviðslistahöfundur, kjánaprik og reglulegur gestur Já elskan. Þið munið kannski eftir henni í 93 þætti af Já elskan "Flo appið virkar ekki" en þar misstókst henni að nota Flo appið sem getnaðavörn, eins og fleirum reyndar.. Í dag mætir hún til leiks, nú nýbökuð móðir með brjóstaþoku. Brynhildur ræðir jólabrasið (eða skortinn því á) og leggur línurnar fyrir komandi ár.
- Показать больше