Эпизоды
-
Anton Sveinn McKee frá Miðflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.
Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.
Tímalína:
8:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
20:30 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
25:00 - Brottfall og stytting menntaskóla
27:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
29:30 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:
@klefinn.is
@antonmckee
@siljaulfars
@midflokkurinn -
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.
Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.
Tímalína:
5:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
17:40 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
25:45 - Brottfall og stytting menntaskóla
32:00 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
34:20 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:
@klefinn.is
@aslaugarna
@siljaulfars
@sjalfstaedis -
Пропущенные эпизоды?
-
Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu.
Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að skrifa niður markmiðið og endurskoða þau reglulega. Markmiðasetning hefur víðtæk áhrif á íþróttafólk, á jákvæðan hátt, þá er gott að skoða sig og þekkja sína styrkleika og veikleika.
Margrét Lára fer yfir muninn á mismunandi markmiðum
Frammistöðumarkmið Færnimarkmið Niðurstöðutengd markmið„Hlutir geta farið í allar áttir, ef maður er samviskusamur og tekur þetta föstum tökum og gerir sitt besta þá getur maður alltaf verið sáttur við niðurstöðuna,“ segir Margrét Lára.
Mælum með að þú takir glósur, gefi þér tíma að skoða hvað þú þarft að vinna í til að ná þínum markmiðum og hefjist svo handa. Gangi þér vel
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram
@mlv9
@Klefinn.is
@Siljaulfars -
Margrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni.
Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin sín, lærdóminn og meiðslin sem höfðu mikil áhrif á hana. Margrét lék með öllum landsliðum Íslands á sama tíma, en í dag myndi hún gera þetta öðruvísi. Þá segir hún frá upplifuninni þegar hún sleit krossböndin rétt fyrir EM og hvernig hún vann sig í gegnum það.
Sálfræðingurinn Margrét Lára gefur einnig góð ráð og smá innsýn inn í huga íþróttafólks, hún ræðir meiðsli og óttanum sem getur fylgt þeim, kvíðann, félagskvíðann, að hafa hugrekki, hvernig við bætum sjálfstraust og hvernig þjálfarar geta aðstoðað íþróttafólkið sitt. Þá gefur hún einnig góð ráð til foreldra og hvetur ungt fólk til að vera í fjölbreyttri hreyfingu og hafa hugrekki.
Þetta og fullt annað í þessum þætti, en á fimmtudag kemur út markmiðaþáttur með Margréti Láru.
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@mlv9
@Klefinn.is
@Siljaulfars4:00 - knattspyrnuferillinn
8:30 - Meiðslin
12:20 - Íþróttamaður ársins
15:35 - Landsleikir og að spila með öllum landsliðunum
22:20 - Afreksmiðuð of snemma og fjölbreyttar íþróttir
29:20 - Heil Heilsumiðstöð
33:50 - Meiðsli íþróttafólks og óttinn sem fylgir
40:20 - Forgangsröðun, Menntaskólarnir og brottfall
42:45 - Meiðsli og hlutverk þjálfara
43:45 - Krossbandaslit fyrir EM
47:00 - Hvað geta þjálfarar gert?
51:20 - Kvíði íþróttafólks
52:30 - Koma aftur eftir barnseignir
55:35 - Ótti og kvíði, félagskvíði, hverjir eru triggerarnir
1:02:10 - Þjálfarar og samtal við íþróttafólkið
1:04:40 - Félagskvíði og að fara inn í aðstæður
1:17:15 - Andlegur styrkur
1:21:10 - hlutverk foreldra
1:24:45 - Halda börnum í íþróttum, höfnun og fleira
1:28:00 - Hver er þín hleðsla?
1:36:55 - Imposter Syndrome
1:41:20 - Sjálfstraust og sjálfstal -
Í þessum þætti ræðum við við Erling Richardsson íþróttafræðing og handboltaþjálfara Austuríska liðsins Mödling og akademíunnar í Vestmannaeyjum. Erlingur ræðir þjálfaraferilinn, reynslu sína að þjálfa í nýju umhverfi, að setja saman teymið sitt, velja fyrirliðann og að byggja upp skipulagða þjálfun fyrir ungt íþróttafólk.
Erlingur talar um mikilvægi þess að æfa fleiri íþróttir og seinka sérhæfingu íþróttafólks, þá ræðir hann einnig hugmyndir um hvernig sé hægt að efla íþróttakennslu, mikilvægi fjölbreytni í íþróttum og hreyfingu fyrir börn og hvernig er hægt að búa til betra umhverfi fyrir ungt íþróttafólk.
Erum við á réttri leið með akademíur, afreksstefnu og sérhæfingu unga íþróttafólksins okkar?
2:00 – Mödling þjálfara verkefnið
19:40 – Akademían í Vestmannaeyjum
23:40 – Íþrótta akademíur – niðurstöður sláandi
25:20 – Leikfimikennsla
31:00 – Þjálfun erlendis
34:20 – Að finna góðan fyrirliða
44:30 – Saudi Arabía
49:15 – Sérhæfing ungs íþróttafólks – barnastjarna eða afreksmaður
1:02:00 – Rannsóknir, Belgía, og fleira.
1:05;40 – Ef Erling mætti ráða, hvernig myndi hann setja þetta upp
1:11:50 – FjölskyldanÞátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@Klefinn.is
@Siljaulfars -
Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur.
Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira.
Margt kom fram í þættinum meðal annars:
Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og eftir æfingar MorgunæfingarFæðubótaefni, prótein, kreatín og fleiri fæðubótaefniLíkamssamsetning, þyngjast, léttast og fleira.15% afsláttur á Hreysti.is með kóðanum KLEFINN - hvetjum þig til að nýta ykkur afsláttinn.
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@nutreleat
@Klefinn.is
@Siljaulfars -
Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar.
Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og að konur ættu að tracka tíðahringinn sinn, þá fer hún einnig yfir hormónabreytingar, getnaðarvarnir og fleira.Það er mikilvægt að opna umræðuna um blæðingar því það er eitthvað sem allar konur upplifa, þá er mikilvægt að karlar og þjálfarar þekki þetta einnig.
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@larahaf
@Klefinn.is
@Siljaulfars -
Brynjar Benediktsson kom í Klefann og sagði okkur hvernig ungt íþróttafólk getur farið út til Bandaríkjanna á háskólastyrk. Brynjar er eigandi Soccer and Education USA ásamt konu sinni Jónu Kristínu Hauksdóttur. Árlega aðstoða þau um 80 íþróttafólk að fá skólastyrk til Bandaríkjanna í fótbolta, körfubolta, frjálsum, sundi og golfi.
Brynjar segir okkur frá ferlinu til að komast út, hann gefur góð ráð fyrir undirbúninginn og hleypir okkur betur inn í þennan Bandaríska heim. Það er gott að huga að þessu snemma og við hvetjum ykkur til að hlusta á þennan þátt og fara strax að elta draumana ykkar.
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@soccerandeducationusa
@Klefinn.is
@Siljaulfars -
Kristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet.
Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð, þá fer hún aðeins yfir Kraftlyftingarnar, en þar er keppt í samanlögðum árangri í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ef þú ert að spá í tölum Kristínar þá á hún 230 kg í hnébeygju, 125 kg í bekkpressu, 240 kg í réttstöðulyftu.Kristín er dýralæknir og tveggja barna móðir, en annar strákurinn hennar er langveikur með sjaldgæft heilkenni. Hvetjum þig til að hlusta, það er greinilega aldrei of seint að byrja á nýju áhugamáli!
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@kristin_thorhallsdottir
@Klefinn.is
@Siljaulfars -
Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september.
Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km.
Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambands Íslands sagði okkur frá mótinu og umstanginu í kringum það, þá heyrðum við í Elite keppendunum ásamt Davíði sem keppir í U23.
Í þættinum ræða þau meðal annars undirbúninginn, næringuna, olnbogana, hvað þarf að huga að og hvernig svona keppni fer fram.
Þátturinn er í boði Útilífs, Auður, Lemon, Hafið fiskverslun og Nutrilenk
Hvetjum ykkur til að hlusta og til að styðja við íþróttafólkið, en þú finnur þau hér:Elite
Bríet Kristý GunnarsdóttirHafdís SigurðardóttirKristinn JónssonSilja JóhannesdóttirU23
Björgvin Haukur Bjarnason Breki Gunnarsson Daníel Freyr Steinarsson Davíð JónssonÞú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@icelandcycling -
Anton Sveinn McKee sundmaður og fjórfaldur Ólympíufari settist hjá Silju og fóru yfir það hvað er að vera afreksíþróttamaður.
Anton gerði upp Ólympíuleikana hvað var öðruvísi og truflaði keppendur einnig ræddi hann hvað er frammundan þegar skýlan nálgast hilluna.
Þá sagði hann okkur ítarlega frá hvernig hann setur markmið og hvernig hann brýtur þau niður og hvað hann gerir til að ná þeim, hvernig vinnur hann í andlega þættinum og notar dagbók og sjónmyndaþjálfun. Næringin, æfingarnar og lyftingarnar.
Þetta er áhugaverður þáttur fyrir allt íþróttafólk sem vill ná árangri.
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@antonmckee
@Klefinn.is
@Siljaulfars -
Ingeborg Eide Garðarsdóttirer kúluvarpari úr Ármanni og keppir í flokki F37 í kúluvarpi, en hún er ein af fimm sem keppa fyrir Íslands hönd á Paralympics sem fer fram í París dagana 28. ágúst - 8. september.
Ingeborg á Íslandsmetið í kúluvarpi sem er 9.83 m og þá á hún einnig íslandsmetið í kringlukasti. Hún keppir á Paralympics þann 31. ágúst í kúluvarpi. Ingeborg þekkir stórmótin vel en hún á bronz frá Evrópumeistaramótinu 2021 og endaði í 4. sæti á HM í maí.
Ingeborg ræðir sinn íþróttaferil, æfingarnar og vegferðina að Paralympics ásamt markmiðunum þar. Einnig útskýrir hún flokkana og prófin sem þau fara í til að setja þau í rétta flokka, þá ræðir hún hvernig á að þjálfa fatlaða einstaklinga og er með skilaboð til foreldra fatlaðra barna.
Hvetjum ykkur til að hlusta á þessa mögnuðu íþróttakonu.
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@ingeborgeidegardards
@Klefinn.is
@Siljaulfars
@npciceland -
Ólympíuleikarnir eru á fullu og það styttist í frjálsíþróttaveisluna. Silja settist niður og tók saman 4 frjálsíþróttafréttir sem henni finnst áhugaverðar sem snúa að frjálsum á Ólympíuleikunum.
4:30 mín - Purple Speed King
9:30 mín - Repechage / endurtekningar umferð
14:00 mín - leiðin að Ól … eða ekki
19:30 mín - Ólympíu verðlauna afhending 12 árum seinna... skellur!
Klefinn er í boði Nutrilenk, Útilíf, Hafið fiskverslun og Lemon.
Endilega fylgdu Klefanum á instagram.
-
Vésteinn Hafsteinsson er einn sigursælasti þjálfari okkar Íslendinga og nú er hann fluttur heim og starfar sem Afreksstjóri ÍSÍ.
Sem þjálfari þá hefur Vésteinn þjálfað 56 einstaklinga frá 10 löndum sem hafa samanlagt náð í 20 verðlaun á alþjóðlegum stórmótum - þar af 5 verðlaun á ÓL.
Hann er nú á leið á sína 11 Ólympíuleika en í nýju hlutverki, hann hefur farið áður sem íþróttamaður, þjálfari og nú sem afreksstjóri og yfir farastjóri.
Vésteinn ræðir í þættinum árangur, hugarfar, framtíðina, hvað einkennir góðan íþróttamann og þjálfara og fleira, hvetjum ykkur til að hlusta.
Þátturinn er í boði Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars -
Þann 25. júní vorum við með hlaupaspjall í Útilíf þar sem Afreksfólk Útilífs settist niður með Silju. Þorsteinn Roy og Andrea Kolbeinsdóttir hlauparar svöruðu ýmsum spurningum um hlaup, undirbúning og fleira, þá var einnig Hildur Kristín sjúkraþjálfari með og svaraði spurningum um hlaupara meiðsli og gaf ráðleggingar..
Í þættinum ræða þau upphitun, recovery aðferðir, hreyfiflæði, hlaupaskó, meiðsli og annað sem er gott að hafa í huga.
Þetta er klárlega þáttur fyrir hlaupara og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref.
Gangi þér vel á hlaupum og endilega taggaðu okkur.
Þátturinn er í boði Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram:
@klefinn.is
@thorsteinnroy
@andreakolbeins
@hildurksveinsdottir
@siljaulfars
-
Jón Halldórsson fór yfir víðan völl þegar hann ræddi leiðtoga, liðsheild, menningu innan liða, Evrópumeistara ævintýri Valsar og fleira.
Jón er einn af eigendum KVAN sem er mennta- og þjálfunarfyrirtæki. Einnig er hann formaður handknattleiksdeildar Vals sem átti stórt tímabil bæði hjá konunum og körlunum.
Jón ræddi hvernig menningin var sköpuð innan liðsins, hvernig þeir fjármögnuðu Evrópukeppnina og framhaldið hjá bæði kvenna- og karlaliðinu.
Þá ræddi hann einnig menninguna innan félagsins hjá Val, sjálfboðaliða, konur í íþróttum og fleira. Íþrótta áhugafólk ætti ekki að missa af þessum þætti.
Þátturinn er í boði Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@kvan.is -
Hafdís er margfaldur Íslands- og bikarmeistari, en hún keppir bæði í götuhjólreiðum, tímatöku og gravel. Hafdís keppir fyrir Íslands hönd og hefur farið á Evrópumeistaramót sem og Heimsmeistaramót.
Hafdís fer með okkur yfir ferilinn, hvað þarf til að ná árangri í hjólreiðum hvernig er að æfa hjólreiðar á Íslandi, einnig þegar það snjóar ennþá í júní. Þá ræðir hún mótin hér heima, samkeppnina og stórmótin úti. Um daginn fóru fimm íslenskar stelpur saman á Tour de feminin og hún segir okkur hvernig það gekk og hvernig það er að vera íslenskur hjólari í þessum stóra hjólaheim. Þá fer hún yfir hvað er frammundan og fleira.
Hvetjum þig til að hlusta en það eru misjafnar áskoranir með misjöfnum íþróttagreinum.
Við óskum henni góðs gengis með framhaldið.
Þátturinn er í boði Útilífs, Lemon, Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@hafdis.sigurdardottir -
Helena er ein farsælasta körfuboltakona Íslands. Helena á nánast öll met sem hægt er að setja í körfuboltanum, en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 12 ára og fyrsta landsleik 14 ára.
Helena ræðir ferilinn, hún fór í Texas Christian University og náði frábærum árangri þar, en í haust verður hún tekin inn í frægðarhöll TCU. Helena spilaði sem atvinnukona í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi, en hún fann mun á að koma úr háskóla “bubblunni” yfir í atvinnumennskuna þar sem þú þarft að standa meira á eigin fótum.
Hugarþjálfun, meiðsli íþróttafólks, sjálfstraust og að taka erfiðu skotin er meðal annars það sem Helena ræðir.
Í dag er Helena að þjálfa, en hún fer aðeins yfir það hvernig körfuboltafólk nýtir sumrin, en finnst leitt hvað landsliðsverkefni unglinga eru dreifð yfir sumartímann sem getur haft áhrif á undirbúningstímabilið.
Þátturinn er í boði Útilífs, Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@helenasverris -
Evrópumótið í utanvegahlaupum fer fram í Annecy, Frakklandi dagana 30. maí - 2. júní.
Hlaupið er um 60km og um 3900 m hækkun, en hlaupaleiðin er í fjöllunum við Annecy vatn.
Við heyrðu í Friðleifi Friðleifssyni liðstjóra og formanns langhlauparanefndar um Evrópumótið og undirbúninginn. Þá heyrðum við einnig í fimm af átta hlaupurum um undirbúninginn fram að hlaupi, taktík, búnað og fleira.Þátturinn er í boði Útilífs, Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Hvetjum ykkur til að hlusta og til að styðja við þau, en þú finnur þau hér:
Andrea Kolbeinsdóttir
Íris Anna Skúladóttir
Halldóra Huld Ingvarsdóttir
Sigþóra Brynja Krisjánsdóttir
Þorbergur Ingi Jónsson
Þorsteinn Roy Jóhannsson
Sigurjón Ernir Sturluson
Halldór Hermann JónssonÞú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars -
Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður handboltamanna. Sjálfur lék Arnar handbolta lengi en fór út í umboðsmennsku þegar hann missti af tækifæri sem hann vildi ekki að aðrir myndu missa af.
Arnar Freyr segir okkur frá heimi umboðsmanna og hvað það felur í sér, en sjálfur segist hann vera í þjónustustarfi sem snýst mikið um samskipti. Þá ræðir Arnar einnig hvaða eiginleika hann vill sjá hjá leikmönnum þegar hann skoðar að byrja að vinna með þeim og af hverju íslenskir handboltamenn eru góð söluvara.
Farið er víða í þættinum, hverjar eru dýrustu leikmanna stöðurnar, hvaða lönd borga mest, hvernig þjálfara bransinn er, prósentur HSÍ og fleira.
Það er fróðlegt að komast inn í heim umboðsmanna, hvort sem þú hefur áhuga á handbolta eða einhverri annarri íþróttagrein.
Þátturinn er í boði Útilífs, Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood.
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars - Показать больше