Эпизоды
-
Annar þáttur af tveimur sem kemur út í dag!
Hellblade 2 kom út í maí og við ætlum að sjálfsögðu að fjalla um hann.
Saga baráttukonunnar frá Orkneyjum heldur áfram og hér er ekkert gefið eftir. Hún heldur til Íslands til að granda þrælasölum þar. Ekkert glens hér á ferð.
Arnór Steinn og Gunnar taka leikinn fyrir og ræða allar hliðar. Sagan, combat kerfið, útlitið og margt fleira!
Er þessi leikur þess virði? Við pælum vel í því saman. Við spillum ekki fyrir neinu alvarlegu í þættinum, þannig ykkur er óhætt að hlusta! En við segjum í hreinskilni hvað okkur finnst og það er margt.
Hvað fannst þér? Er spenna hjá ykkur fyrir þessum leik?
Endilega tékkið á þætti 207 þar sem við ræddum við Aldísi Amah Hamilton um hennar hlutverk í leiknum! Virkilega gott og fræðandi spjall.
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Helgin síðasta var STÚT full af kynningum fyrir spennandi leiki ársins. Star Wars Outlaws, Lego Horizon, munkabruggleikur og margir fleiri.
Arnór Steinn og Gunnar taka best of og það kemur á óvart hvað hver er spenntur fyrir hverju.
Er Arnór raunverulega að peppa Assassin´s Creed leik? Er Gunnar að fara að kaupa gæludýra-farming leik á degi eitt?
Hlustið og tékkið á því! Þessi og næsti þáttur (209 – Hellblade 2) tengjast því við tókum þá upp einn á eftir öðrum. Þeir koma BÁÐIR út í dag!
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Пропущенные эпизоды?
-
Leikkonan Aldís Amah Hamilton snýr aftur í stúdíó til strákanna og það er ekkert annað en VEISLA eins og í síðasta þætti.
Eins og kunnugt er leikur hún aðalhlutverkið í íslensk-framleidda leiknum Echoes of the End, sem kemur ekki alveg strax út, EN! hún leikur í nýja Hellblade leiknum, Senua's Saga!
Hún segir Arnóri Steini og Gunnari allt um hvernig það er að leika í þeim leik, tölum enn meira um Final Fantasy og hver er drauma tölvuleikjaserían til að leika í.
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Í tilefni þess að FURIOSA er komin í bíó taka Arnór Steinn og Gunnar fyrir Mad Max leikinn, falinn demant frá 2015.
Leikurinn var svo óheppinn að koma út sama DAG og annar frekar legendary leikur .. munið þið hver það er?
Strákarnir minnast líka á tilraun þeirra til að komast í samband við forsetaframbjóðendur varðandi tölvuleikjaspilun þeirra. Gekk ekki vel en fengum amk tvö svör!
Hvernig fannst þér Mad Max leikurinn?
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Hvern langar ekki í city builder með hagfræðilegu ívafi?
Án alls gríns þá er Manor Lords (sem er að mestu úr smiðju eins manns) andskoti áhugavert verkefni sem er nú í boði á Steam.
Þý byggir þorp og breytir því í stórbæ ásamt því að taka yfir svæði í kringum þig.
Arnór Steinn og Gunnar ræða það sem komið er út í þaula. Leikurinn er ekki tilbúinn en við erum með vísbendingar um hvað verður í boði í leiknum þegar hann er tilbúinn.
Hlustaðu á þáttinn fyrir nokkur tips&tricks til að koma samfélaginu þínu af stað í MANOR LORDS
... og kaupið hann svo á Steam ... undir eins!
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Við þurftum 200 þætti til að hita upp fyrir þetta meistaraverk.
Arnór Steinn suðaði og puðaði og það virkaði! Gunnar er kominn í New Vegas og búinn að spila nóg til að ræða fyrsta helminginn.
Deep dive á einum helvíti áhugaverðum leik. Það fylgir stór höskuldarviðvörun þessum þætti; drengirnir ræða ALLT.
Companions, sagan, factions, playstyles og margt, MARGT fleira í stút fullum þætti um New Vegas!
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Þáttur vikunnar er eitt stykki rifrildi.
Gunnar vill ólmur vita af hverju Arnóri Steini er svona illa við Fallout 4. Arnór Steinn vill bara rífast.
Pick a side.
Civil War.
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
DD2 er einn af stóru leikjum ársins. Opinheims hack n slash leikur með brjálæðislega pirrandi fylgjendum.
Er eitthvað meira?
Arnór Steinn og Gunnar taka gott deep dive á leiknum. Þetta er spoiler free þáttur þannig þið getið hlustað án þess að hafa spilað leikinn.
Ert DD2 í safninu þínu? Hvað fannst þér?
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Okey dokey!
Þáttur vikunnar erum Fallout þættina. Arnór Steinn og Gunnar eru MJÖG hrifnir og taka gott deep dive í karakterana, söguna, tenginguna við leikina og fleira.
Þetta er spoiler fullur þáttur, horfðu fyrst á Fallout seríuna áður en þú hlustar! Þú munt ekki sjá eftir því, þetta er SNILLD.
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Til hamingju hlustendur, það eru komnir 200 þættir!
Arnór Steinn og Gunnar fagna almennilega. Við förum yfir farinn veg og veljum okkar uppáhalds þætti.
Komnir eru SLATTI af Spotify playlistum þar sem þættirnir okkar eru flokkaðir niður. Langar þig að hlusta á öll viðtöl Tölvuleikjaspjallsins? Kíktu þá á playlistann! Langar þig bara að hlusta á leikjagagnrýni? Sá playlisti er til líka!
Við erum ævinlega þakklátir ykkur fyrir alla hlustunina. Much love og sjáumst í næsta þætti <3
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Hvað á að gera þegar Arnór er í fríi?
Þá hendum við góðvini þáttarins Alexander Maron (allimaron93), sem hefur áður hlaupið í skarðið og bjó einnig til þemalagið okkar, í stólinn með Gunnari.
Þeir taka gott Allaspjall um Hogwarts Legacy, World of Warcraft og svo testar Gunnar hann í tölvuleikjatrivia.
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Árið 2024 heldur áfram að gefa.
Rise of the Ronin kom út um daginn og hefur reynst ... bara frekar vel? Fær góða dóma og umsagnir.
Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að spila leikinn í döðlur og hafa margt að segja. Þátturinn er spoiler free og inniheldur okkar helstu hughrif.
Er Rise of the Ronin í þínu safni? Hvað finnst þér?
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir SNÚA AFTUR!
Í þetta skiptið rifja Arnór Steinn og Gunnar upp hina frábæru Street Fighter frá 1994. Hún var ein fyrsta ömurlega tölvuleikjakvikmyndin sem Tölvuleikjaspjallið fjallaði um í september 2020 (!!!).
Nú horfðu þeir báðir á myndina og ræða hana í þaula. Spurningin er:
Er hún orðin eitthvað betri?
Hvað finnst ykkur?
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Back to basics, kæru hlustendur! Tölvuleikjaspjallið er einungis í hljóði á ný.
Í þætti vikunnar hita Arnór Steinn og Gunnar upp fyrir væntanlega Fallout sjónvarpsþætti, tala ENN meira um Helldivers II og aðeins um leik sem þeir mega bókstaflega ekki segja neitt um.
Hver er þín skoðun á Fallout sjónvarpsþáttunum?
Þátturinn er í boði Elko Gaming. -
Aron Ólafsson var framkvæmdastjóri RÍSÍ í rúm fimm ár. Nú er hann farinn á ótroðnar slóðir hjá Solid Clouds og kemur því til Arnórs Steins og Gunnars og gerir upp RÍSÍ tímann.
Rafíþróttir urðu í stuttu máli risastór hluti af íslensku samfélagi á mjög stuttum tíma.
Við ræðum stöðuna í dag, hvernig þetta er búið að vera og hversu geggjað það er að krökkum er ekki lengur strítt fyrir að spila tölvuleiki.
Nei samt í alvörunni - það er GEGGJAÐ <3
Takk fyrir þín störf og gangi þér vel í því næsta, Aron!
Þessi þáttur verður einnig okkar síðasti í myndbandsformi í einhvern tíma. Meira um það síðar!
Þátturinn er í boði Elko Gaming. -
Playstation Portal kom út fyrir nokkrum dögum síðan og ... hvað? Hvernig er tölvan? Hvernig hefur hún reynst?
Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að spila slatta og ræða þennan áhugaverða PS5 aukahlut í þætti vikunnar.
Gunnar hefur spilað Helldivers II hjá tengdó og Arnór Steinn er mögulega búinn að fara með sína í bað.
Ræðum tækni, útlit, þægindi og margt fleira.
Er Portal á þínu heimili? Hvernig hefur hún reynst?
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Settu á þig sundhettuna, farðu í sundfötin og dýfðu þér með andlitið fyrst oní geðveikina sem er HELLDIVERS 2.
Arnór Steinn og Gunnar koma með sín fyrstu hughrif af þessum frábæra leik.
Byssur, vondukallar, geðveiki, bilun og helvítis dýfan.
Oní með ykkur og ekkert múður!
Ef þið eruð ekki búin að prófa divers þá gerið þið það á sekúndunni eftir að hafa hlustað á þennan þátt!
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Það eru allnokkrir hlustendur búin að biðja okkur um að taka viðtal við Guffa úr GTS þannig hér kemur það!
GTS mótaröðin er að verða vinsælli og vinsælli og því snilldar hugmynd að fá einn af frumkvöðlunum hér á landi í viðtal til að útskýra fyrir Arnóri Steini um hvað þetta allt saman snýst.
Hvað getur þú gert til að taka þátt? Þú getur byrjað á að tjékka á Facebook hópnum hjá GTS samfélaginu og svo setur þú stefnuna á YouTube rásina þeirra, hlekkir hér fyrir neðan.
Takk kærlega fyrir komuna í þáttinn Guffi!
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
https://www.facebook.com/groups/gtsiceland/
https://www.youtube.com/@GTSIceland
-
Cory Barlog spilaði Hades og ákvað að gera sinn eigin ... og hann er geggjaður.
Spoiler filled þáttur um GOD OF WAR RAGNARÖK dlc pakkann VALHALLA. Spilið hann og horfið svo á þennan þátt.
Myndir þú vilja spila God of War: Betlehem þar sem jésúbarnið er loka boss?
Hvernig fannst þér Valhalla?
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
-
Það er stóra spurningin ... eftir svakalega gott 2023, verður 2024 gott eða slæmt?
Arnór Steinn og Gunnar rýna í komandi leiki ársins. Sumir eru áhugaverðir, aðrir munu fljúga undir radarinn.
Þeim tekst einnig einhvern veginn að nýta tækifærið til að drulla yfir Assassin's Creed.
Hvaða leikur vekur mesta spennu hjá þér? Segðu okkur frá!
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
- Показать больше