Episodi
-
Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna á föstudögum yfir sumartímann. Sara Björk farin í Hauka, FH gæti farið á gervigras, Freyr Alexandersson látinn fara, félagaskiptafréttir og miklu fleira.
-
Viðar Örn Kjartansson er gestur Helga Fannars þessa vikuna. Viðar sneri heim á Selfoss í vetur og tekur slaginn með liðinu í 2. deild í sumar. Hann ræðir þessa endurkomu, kaflaskiptan tíma með KA og kemur inn á sína persónulegu baráttu utan vallar í þættinum, svo fá dæmi séu tekin.ComposeWrite to Helgi Fannar Sigurðsson
-
Episodi mancanti?
-
Íþróttavikan er í boði Lengjunnar!
Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður, skákmeistari og Arsenal-maður, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars í Íþróttavikuna.
Það er að sjálfsögðu rætt um hina nýkrýndu Englandsmeistara, Arsenal. Félagið og stuðningsmenn hafa beðið í 22 ár frá síðasta titli og því hefur eðlilega verið fagnað dátt víða um heim.
Lokaumferðin sem framundan er í ensku úrvalsdeildinni er sömuleiðis skoðuð og þá fær körfuboltinn gott pláss. Grindvíkingar hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum á dögunum.
Þetta, Besta deildin og alls konar fréttir úr liðinni viku.
-
Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna og skoða það sem framundan er. Landsliðshópur, Mjólkurbikarinn, enski boltinn og fleira til umræðu.
-
Arnar Grétarsson, knattspyrnuþjálfari og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, er gestur Helga Fannars í þætti dagsins. Þeir ræða pólitíkina í fyrsta hluta þáttarins áður en farið er í fótboltann, þar sem Arnar ræðir til að mynda síðasta sumar sem þjálfari Fylkis og einnig Bestu deildina sem er í fullum gangi.
-
Jóhann Skúli Jónsson er gestur Helga Fannars í þættinum og Hörður Snævar er með honum einnig. Þeir félagar ræða Bestu deildina rækilega en fara einnig yfir aðrar íþróttir og kíkja út í heim.
-
Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þriðju umferð Bestu deildar karla og rýna í helgina framundan á Englandi.
-
Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Eins og flestir vita eru þær tvær af allra fremstu leikmönnum íslenska landsliðsins, sem mætir Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM á Laugardalsvelli á morgun.
-
Þeir Kristján Óli Sigurðsson og Tómas Guðmundsson voru gestir Helga Fannars í þætti vikunnar.Þeir eru fyrrum leikmenn og stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings, sem mætast í opnunarleik Bestu deildarinnar á heimavelli síðarnefnda liðsins. Einnig er farið yfir stóru málin úr vikunni.
-
Íþróttavikan kemur fyrr út í dymbilviku og er með aðeins breyttu sniði. Helgi Fannar og Hörður Snævar opinbera spá 433.is fyrir Bestu deild karla og ræða hvert lið fyrir sig.
-
Adam Ægir Pálsson og Jónatan Ingi Jónsson, leikmenn Vals, eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni.Þeir félagar ræða komandi tímabil, stöðuna á liðinu og margt fleira. Auk þess er auðvitað farið út í heim.
-
Benedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Þeir fara yfir fréttavikuna, ræða komandi fótboltasumar, enska boltann og miklu fleira til.
-
Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, eru gestir Helga Fannars í þættinum.
-
Kjartan Atli Kjartansson og Andri Már Eggertsson, Nablinn, eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Það er farið vítt og breytt um sviðið í þætti dagsins, þar sem fótbolti, handbolti og körfubolti koma við sögu.
-
Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Það eru sléttar sex vikur í að Besta deild karla fari af stað og eftirvæntingin er orðin mikil.Deildin fær sviðið í þætti dagsins, þar sem staðan er tekin á öllum liðunum. Félagaskiptamarkaðurinn, undirbúningstímabil þeirra og miklu fleira er skoðað.Þátturinn er einnig í mynd inni á 433.is.
-
Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þétta fréttaviku, ræða boltann út í heimi og miklu meira.
-
Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, er gestur Helga Fannars í þætti vikunnar.Daníel er í hópi íslenska landsliðsins sem mætir Mexíkó síðar í mánuðinum og eru þau mál rædd í þættinum, auk síðasta tímabils, þess sem framundan er og auðvitað miklu fleira.
-
Hjálmar Örn og Helgi Jean, sem halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi HæHæ, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni.
-
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, eru gestir Helga Fannars í þættinum.Ísland er komið í undanúrslit á EM karla í handbolta og fær handboltinn sviðið í fyrri hluta þáttar, áður en fótboltinn tekur við.
- Mostra di più