Episodi
-
Sólborg Jónsdóttir liggur með barni sínu í Svalbarðskirkjugarði í Þistilfirði. Einar Benediktsson gegndi hlutverki sýslumanns í Sólborgarmálinu og er sagður hafa tekið andlát Sólborgar mjög nærri sér og trúði því líkt og margir að vofa Sólborgar fylgdi honum á milli bæja og sveita sem varð til þess að henni var gefið viðurnefnið draugurinn í Höfða.
Viðmælandi : Aðalbjörg Jónasdóttir.
Tónlist: Mary Lattimore, Gyðja Valtýsdóttir, Hildegard von Bingen, Jóhann Jóhannsson, Hildar Guðnadóttir, Robert Aiki Aubry Lowe, tónlistarhópurinn Úmbra, Lotte Pen, Nora Fischer.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Sólborg Jónsdóttir starfaði sem vinnukona á bænum Svalbarð í Þistilfirði um tíma eða allt þar til hún dó í sínum eigin réttarhöldum í gestastofunni á bænum. Enn í dag rúmri öld síðar er fólk enn ósammála um hvernig dauða Sólborgar bar að garði og hverju sé um að kenna að svo fór sem fór.
Viðmælendur: Daníel Hansen, Aðalbjörg Jónasdóttir og Aldís Gunnarsdóttir.
Tónlist: Mary Lattimore, Gyða Valtýsdóttir, Hildegard Von Bingen, Jeremiah, Chiu, Marta Sofia Honer, tónlistarhópurinn Umbra, Theresa Wong, Pauline Oliveros, Lotte Pen, Nora Fisher.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Episodi mancanti?
-
Halldóra Jónsdóttir bjó við mikla einangrun á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði ásamt föður sínum og systkinum. Lífið sem hún þekkti breyttist þó snögglega í kjölfar þess að fjórir menn frá sýslumannsembættinu gerðu sér ferð að bænum vegna gruns um glæpsamlegt athæfi. Halldóra fékk á endanum dauðadóm og henni drekkt líkt og fjölmörgum konum hér á öldum áður.
Viðmælandi : Kristín Amalía Atladóttir
Tónlist: Mary Lattimore, tónlistarhópurinn Umbra, Theresa Wong, Brian Eno, Bruce Brubaker, Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðnadóttir, Robert Aiki Aubrey Lowe.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.