Episodi
-
Þegar hugmyndir um minjavörslu tengda Vestmannaeyjagosinu fóru að taka á sig mynd upp úr aldamótum óraði engan fyrir því hvers konar aðdráttarafl fælist í því að segja þessa sögu. Eldheimar hafa sannað sig sem mikilvægur áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn jafnt sem Íslendinga þegar Heimaeyjar er vitjað.
-
Sigurður Sævar Magnúsarson hefur um nokkurra ára skeið verið mjög áberandi í íslensku myndlistarlífi. Hann hefur á sama tíma stundað nám við Konunglegu listaakademíuna í Den Haag í Hollandi. Hann heldur úti vinnustofu á Háaleitisbraut en stefnir á útrás með haustinu. Moggamenn tóku hús á listamanninum.
-
Episodi mancanti?
-
Fyrir svörum eru þeir fimm forsetaframbjóðendur sem hlotið hafa 10% fylgi í skoðanakönnunum eða meira: Þau Baldur Þórhallsson prófessor, Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri, Halla Tómasdóttir forstjóri, Jón Gnarr leikari og Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra.
Í upphafi kappræðna eru kynntar glóðvolgar niðurstöður síðustu skoðanakönnunar sem Prósent gerir fyrir Morgunblaðið og mbl.is.
-
Á þriðja hundrað manns mætti á forsetafund Morgunblaðsins og mbl.is með Höllu Tómasdóttur á Park Inn by Radisson í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Þetta var síðasti forsetafundurinn en í næstu viku verða haldnar forsetakappræður á vegum Morgunblaðsins og mbl.is.
Halla hefur verið á flugi í skoðanakönnunum að undanförnu og munar núna innan við sex prósentustigum á henni og Katrínu Jakobsdóttur, sem er með mesta fylgið, í skoðanakönnun Prósents sem kom út á mánudag.
-
Forsetafundur Morgunblaðsins á Græna hattinum á Akureyri með Katrínu Jakobsdóttur var fjölsóttur, en á annað hundrað manns gerðu sér leið þangað.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýrðu fundinum og spurðu Katrínu ýmissa spurninga um embætti forseta Íslands og hvernig hún hygðist haga setu sinni í embættinu.
-
Hátt í 200 manns sóttu forsetafund Morgunblaðsins með Baldri Þórhallssyni á Hótel Selfossi þar sem líflegar umræður sköpuðust um ýmis mál.Í upphafi fundar voru álitsgjafar fengnir til að ræða stöðuna og spá í spilin um forsetakosningarnar. Kjartan Björnsson, rakarameistari og forseti bæjarstjórnar Árborgar, og Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri Hrunamannahrepps voru álitsgjafarnir að sinni og voru sammála um að um mjög spennandi kosningar væri að ræða.
-
Rebekka Hilmarsdóttir og maður hennar, Örn Hermann Jónsson, tókust á hendur það verkefni árið 2014 að gera upp gamla spítalann á Patreksfirði sem reistur var á Geirseyrinni árið 1901. Þau standa enn í þeim stórræðum og halda því reyndar fram að verkefninu muni sennilega aldrei ljúka. Morgunblaðið tók hús á þeim á kyrrlátu kvöldi við fjörðinn.
-
Hátt í tvö hundruð manns sóttu líflegan borgarafund Morgunblaðsins með Höllu Hrund Logadóttur forsetaframbjóðanda í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum.
Halla Hrund sagði á fundinum að kannski væri sjaldan meiri þörf en nú að velja forseta sem myndi leggja sig fram við að sameina þjóðina.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson spurðu Höllu Hrund um framboðsáherslur hennar til embættis forseta Íslands og þá fengu fundargestir tækifæri til að spyrja Höllu spurninga.
-
Fyrir Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur aðstoðarskógarvörð í Hallormsstaðaskógi kom fátt annað til greina en að vinna
í umhverfi þar sem tengslin við náttúruna eru mikil. Það hefur hún gert síðan sumarið 1987 og unir hag sínum vel. -
Gengið er til sveitarstjórnarkosninga í nýju sveitarfélagi þann 4. maí, aðeins tveimur árum eftir síðustu kosningar. Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð renna nú saman í eina sæng. Oddvitar framboðanna tveggja sem bjóða fram ræða við Moggamenn um kosningarnar og stöðuna í sveitarfélaginu.
-
Það var húsfyllir á borgarafundi Morgunblaðsins á Ísafirði með forsetaframbjóðandanum Jóni Gnarr í gærkvöldi.
Jón sagði að eftir að hann lét af störfum sem borgarstjóri Reykjavíkur árið 2016 hefði fólk komið að máli við sig um að hann byði sig fram til forseta. Þá hefði verið gerð könnun sem leit vel út fyrir hann en Jón taldi þá ekki rétt að bjóða sig fram.
-
120 metra langur hellir uppgötvaðist fyrir tilviljun við Jarðböðin við Mývatn þegar ákveðið var að stækka þjónustuhús sem núer í byggingu. Guðmundur Þór Birgisson framkvæmdastjóri Jarðbaðanna hitti blaðamenn í menningarhúsinu Hofi á Akureyriog ræddi um lífið í Jarðböðunum, hinn dularfulla helli sem uppgötvaðist fyrir tilviljun og framtíðarhorfur í ferðamennskunni.
-
Gunnar Gunnarsson hóf ferilinn á því að skrifa fyrir vefsíðu stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi en er í dag ritstjóri Austurfréttar og hefur verið í um áratug.
-
Sól skein í heiði er blaðamenn óku yfir Fjarðarheiði skömmu eftir páska, en dagana á undan hafði heiðin verið lokuð á fimmta dag. Á bæjarskrifstofunni á Seyðisfirði tók á móti okkur Dagný Erla Ómarsdóttir sem missti húsið sitt í aurskriðu árið 2020.
-
Það sýndi sig glöggt í snjóflóðunum í Neskaupsstað í mars 2023 að þörf væri á nýrri aðgerðastjórnstöð almannavarna á Austurlandi. Ný og velútbúin stjórnstöð var tekin í gagnið í janúar 2024. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, og Agnar Benediktsson, björgunarsveitarmaður í Jökli, ræða um nýja stjórnstöð og áföll síðustu ára í þætti vikunnar.
-
Sr. Kristján Valur Ingólfsson biskup og kona hans, Margrét Bóasdóttir, búa á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þau hafa tekist á hendur það verkefni í félagi við fleira fólk að efla staðinn og halda um leið nafni Hallgríms Péturssonar á lofti.
-
Uni Hrafn Karlsson hefur byggt upp öflugt bifreiðaverkstæði á mikilvægum stað við þjóðveginn. Hann segir verkefnin óþrjótandi og að eini flöskuhálsinn sé skortur á öflugum bifvélavirkjum.
-
Mitt í Öræfunum, kippkorn frá Jökulsárlóni, er lúxushótel ekki langt ofan við þjóðveginn, óvenjuleg bygging en þó látlaus í þessu stórbrotna umhverfi. Hrafnhildur E. Karlsdóttir hótelstjóri var tekin tali um lífið undir Öræfajökli.
-
Steinþór Arnarson er alinn upp í Öræfum. Þegar hann sá nýtt lón myndast undir Fjallsárjökli fékk hann viðskiptahugmynd og í meira en áratug hefur hann siglt með ferðalanga að jökulsporðinum og breytt sýn þeirra á íslenska náttúru.
-
Sjávarútvegsfyrirtækið Skinney Þinganes er langstærsti vinnuveitandinn á Höfn, ef hið opinbera er undanskilið. Aðalsteinn Ingólfsson hefur stýrt fyrirtækinu í nærri þrjá áratugi og segir stöðuna á svæðinu góða þótt áskoranir séu margar, m.a. vegna loðnuleysis og hruni í humarstofninum.
- Mostra di più