Episodi
-
Þeir eru komnir aftur. Þrír lélegustu Fantasy spilarar landisins. En það eru stór tíðindi. Strákarnir sem enginn trúði á eru að vinna leikinn. G. Fel eða eins og við köllum hann Playitsafe KÓNGURINN er í topp 50 á íslandi. Mun hann halda því? Hvernig fer hann að því? Allt þetta og ekkert það mikið meira í þætti vikunnar.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Strákarnir halda áfram á lokametrunum. Eftir niðurlægjandi spuurningakeppni þá reyna strákarnir að halda andliti sem fótboltasérfræðingar landsins. Geinar kemur seint, því Geinar kemur alltaf seint. Einu sinni ætlaði Geinar að fara í bíó klukkan 8 en endað með að fara í sund kl 7 því hann gleymdi hvað hann var að fara að gera. Algjör Geinar sko. Núna var hann á einhverjum "fundi." Ekki satt. Líklega sofandi. Hann sefur MJÖG mikið. Sérstaklega á daginn. Allt þetta og svo miklu fleira í Lélega Fantasy Podcastinu.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Episodi mancanti?
-
Sko.. í þessum þætti eru eiginlega engin ráð í Fantasy, eiginlega engar góðar pælingar um fótbolta og spurningakeppni sem okkur langar eiginlega bara að enginn heyri. Það eru greinilega engin takmörk fyrir því hversu lítið um fótbolta tveir Guðmundar geta vitað. Ef þú veist mikið um fótbolta og hatar þegar fólk veit lítið um fótbolta, ekki hlusta á síðasta hlutann í þessum þætti. Hlustunin verður bara of sársaukafull.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Villi Neto er gestur þáttarins þessa vikuna. Fjögurra leikja blank gameweek að baki og margir héldu að þeir hefðu náð slæmum árangri en fáir geta væntanlega toppað hræðilegan árangur Villa sem fékk heil 8 stig í umferðinni. Umræður um portúgalska leikmenn og hvað nöfnin þeirra þýða, Eurovision hornið er að sjálfsögðu á sínum stað og líklega eitt versta lag sem búið hefur verið til í þessum þáttum.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Það er enginn forráðamaður (Gummi) í stúdíóinu í dag og börnin leika lausum hala. Þeir vita eiginlega ekki hver neinn leikmaður er og kunna ekki að bera nöfnin þeirra fram, en hey, þetta er ekki GÓÐA fantasy podcastið er það??
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
GJAFALEIKUR HÉR FYRIR NEÐAN.
SÁ FYRSTI SEM LES ÞENNAN TEXTA OG SENDIR OKKUR SKILABOÐ Á INSTAGRAM FÆR LAG. VIÐ ERUM BÚNIR AÐ VERA MEÐ ÞENNAN LEIK Í NOKKRAR VIKUR OG ENGINN HEFUR BEÐIÐ OKKUR UM LAG. SEM ÞÝÐIR ÞAÐ AÐ ENGINN LES ÞENNAN TEXTA.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
CROSSOVER EPISODE!!! Já báturinn hjá okkar mönnum er mannaður en stundum verður maður að hoppa yfir í annan bát og manna hann. Því Lélega fantasy podkastið fór í vettvangsferð yfir í Fantabrögð og fóru yfir málin. Strákarnir ræða hver er hvað í hverju podcasti og svo segir Pálmi mjög kúl sögu um að hann hafi verið eins og aðalsöguhetjan i Good Will Hunting í rock ‘n roll pub quiz-i þar sem hann vann næstum því þrátt fyrir það að vera EINN í liði. OG AFTUR EF EINHVER ER AÐ LESA ÞENNAN TEXSTA MÁ SÁ HINN SAMI BIÐJA UM LAG ÞVÍ ENGINN LES ÞETTA. En já fysti sem sendir skilaboð fær lag. En já þetta og svo miklu fleira i þætti vikunnar
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Hvenær er næsti leikur? Er þetta tvöföld umferð eða blank gameweek hjá Tottenham mönnum? Bíddu hvenær var eiginlega síðasta umferð? Já strákarnir eru ruglaðir í öllum hamagangnum sem er í gangi. Þeir vita ekkert og eru á barmi uppgjafar. En þá snúa þeir sér að því sem þeir eru bestir í, að vera lélegir í Fantasy. Þeir henda í nokkrar eftirhermur, Gummi virðist vera nálægt því að slá eitt virtasta metið í lélega fantasy podcastinu og Martial, hvað verður um Martial?
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Ókei, sko. Fantasy er bara ekki skemmtilegt lengur. Endalausar frestanir og eitthvað rugl. En hér í Lélega Fantasy Podcastinu höfum við skyldum að gegna og hér er þáttur. Extra stuttur þáttur með extra lélegum ráðum. Phil Jones hornið lítur dagsins ljós í fyrsta skiptið og Pálmi segir frá masterplaninu sínu að taka -4 til að kaupa Benrahma rétt áður en hann hóf leik á AFCON.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Strákarnir koma aftur endurnærðir eftir stutt jólafrí. Það er overtime baby. Pálmi segir frá ævintýrum sínum á pósthúsinu og Gummi reynir að fara yfir tvær umferðir í einum þætti. Geinar er fjarri góðu gamni því, í alvöru les einhver þennan texta, ég trúi því ekki, ef þið eruð ennþá að lesa sendið okkur random broskall á instagramið okkar. Allt þetta og svo miklu fleira í þætti vikunnar.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Hó hó hó og gleðileg jól! Strákarnir halda áfram að reyna að komast í gegnum þetta saman með öllum frestunum og öllu sem þvi fylgir. Það er jólaskap í stúdíóinu og hver veit nema strákarnir spili einn laufléttan leik. Gleðileg jól frá lélega Fantasy podcastinu. Við hlökkum til að gefa ykkur léleg ráð með hækkandi sól og lækkandi overall rank.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Skrítnir tímar, skrítin ráð. Fantasy er extra óútreiknanlegt þessa stundina en strákarnir reyna að spá fyrir komandi vikum. Þessi þáttur verður orðinn úreltur eftir sólarhring svo það er um að gera að hlusta strax! Gummi er haldinn þeirri sjálfsblekkingu að góð staða hans í FPL sé verðskulduð og hafi ekkert með heppni að gera. Sjálfur Fantasy-guðinn sendir inn spurningar og hlustendur eru upplýstir um dýpstu leyndarmál spunaleikarans. Umræður um slána, kúk í hári og margt fleira í þætti vikunnar.
Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Viðburðarík vika að baki. Ronaldo og Vardy eru báðir fáránlega gamlir en bara annar þeirra er með kæliklefa heima hjá sér og hinn fær sér pulsu eftir hvern leik. Augljóst hvorn þeirra maður á að eiga í Fantasy. Dennis heldur áfram að niðurlægja fólk sem pælir í tölfræði og Jimenez er barnalegur og heimskur. Miklar umræður um jólahefðir og eplakinnarnar hans Tielemans. Geinar gerði tvær stórkostlegar uppgötvanir: Að kalla Newcastle Kúkastle og að það er leikmaður í Leicester sem heitir Brunt. Allt að frétta í Lélega Fantasy Podcastinu.
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Strákarnir áttu erfiða viku. Allir sökka og lífið hefur misst lit sinn. Skammdegið heltekur bæði sálarlíf drengjanna þriggja og líka Fantasy liðin þeirra. Desember er tilfinningasprengja mánaðanna og það er stutt milli hæða og lægða. Hvað skal gera? Er Geinar virkilega að fara að hætta? Hefur Gummi Fel missti flugið? Er Pálmi bara alltaf Hr. Miðja? Þessum spurningum ásamt spurningum hlustenda verður svarað í nýjasta þætti af Lélega Fantasy Podcastinu.
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Kraftaverkin halda áfram að hrannast inn - en strákarnir voru meyrir og þakklátir fyrir fallega sendingu. Sagan um ástir og örlög Inga8 heldur áfram og þið trúið ekki hvað gerist næst! Eitthvað þarf Pálmi að fara að skoða veðurspána ef það heldur áfram að rigna svona upp í nefið á honum, en kannski er það skiljanlegt í ljósi þess hve rosalega hriktir í stoðum Felveldisins.
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Glæsileg vika að baki. Er veldi Gumma Fel að falla? Æsispennandi þáttur sem er tekinn upp klukkutíma eftir síðasta leik umferðar 13. Það er jólaseason sem þýðir overtime hjá strákunum. En drama síðustu viku heldur áfram. Kemur í ljós að Ingi8 er ekki allur þar sem hann er séður. Var kraftaverk vikunnar í síðustu viku ef til vill ekki það besta fyrir okkar mann? Þetta, spurningar og splunkunýtt LIVE lag frumflutt í nýjasta þættinum af Lélega Fantasy Podcastinu.
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
WARNING: Gæsahúð coming up! Glænýtt gæsahúðar-þemalag er frumflutt í þætti dagsins! En það er ekki eina gæsarhúðaraugnablikið, því við fengum að upplifa alvöru kraftaverk í þættinum. Strákarnir reyna að velja ofurkrafta, þar sem Geinar leitar að stöðugum loopholes í reglunum. Framtíð ruggustólsins er til umfjöllunar og strákarnir sýna enn á ný vanþekkingu sína á knattspyrnu.
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Gummi Fel er númer 24 á Íslandi. Lélega Fantasy podcastið hefur orðið að því sem við lofuðum okkur að verða aldrei, gott fantasy podcast. Við fögnum því með því að fara í ríða, drepa, giftast með framherjana okkar og velta því fyrir okkur hverja okkur langar mest að kyssa í ensku deildinni. Stóra spurningin er samt hvort þetta sé allt saman heppni eða er hægt að vera raunverulega góður í Fantasy?
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Nú eru góð ráð dýr. Geinar er á Tene og þá er gott að fá góðan mann inn af bekknum. Það er enginn annar en Loji Höskuldsson myndlistaramaður og söngvari hljómsveitarinnar Bjartar Sveiflur. Strákarnir ræða síðustu umferð þar sem Gummi Fel brilleraði og er núna í 36. sæti á Íslandi. Stóra spurningin er auðvitað hvort podcastið okkar ber nafn með rentu. Auk þess veltum við því fyrir okkur hvort við myndum sofa í herbergi fullu af snákum og hvernig gott uppstokkunarspil myndi líta út núna. Þetta og fleira í þætti vikunar.
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
-
Risaumferð að baki. Gummarnir eru í sjöunda himni eftir að hafa sett fyrirliðabandið á Salah meðan Pálmi situr eftir með buxurnar í hnút. Strákarnir velta fyrir sér hver sé myndarlegasti leikmaðurinn og hvort Ole Gunnar Gollrir eigi ekki bara að skriða inní norska hellinn sinn.
Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
- Mostra di più