Episodi
-
Jóhannes Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó bs. settist niður með okkur að þessu sinni og ræddi reynslu af rafmagnsvögnum í þjónustu Strætó, helstu kosti og hvað framtíðin ber í skauti sér. Vissirðu t.d. að það er um 90% ódýrara að keyra rafmagnsvagna og viðhaldskostnaðurinn er 50% lægri?
-
Í þessum fyrsta þætti Rafbílahlaðvarpsins eftir langt hlé kom Guðjón Hugberg Björnsson í heimsókn. Við ræddum m.a. orkuþörf rafbíla og þróun og framtíðarsýn í hleðslustöðvum
0:00 - Hvað eru hleðslustöðvar?
14:20 - Hleðsla í fjölbýlishúsum
19:15 - EVS35 ráðstefnan í hleðslumálum
30:50 - Notkun á hraðhleðslustöðvum á landinu
38:50 - Plug&Charge tæknin
49:30 - Rafbílahleðsla í ljósastaurum
-
Episodi mancanti?
-
Í þessum síðasta þætti Rafbílahlaðvarpsins fyrir jólafrí kom Guðmundur Jóhann Gíslason, leigubílstjóri hjá Hreyfli í heimsókn. Við ræddum m.a. notkun rafbíla í leigubílabransanum og kosti þess að nota rafbíl í rekstri.
0:00 - Upphaf rafbílavæðingar leigubílaflotans
5:00 - Algengustu spurningar fólks
10:00 - Aðgengi að hleðslu við Keflavíkurflugvöll
16:50 - Kostir við að nota rafbíl sem leigubíl
-
Sæþór Ásgeirsson, véla- og orkuverkfræðingur hjá IceWind. Við ræddum framhaldslíf rafhlaðna úr rafbílum og nýtingu þeirra við orkuframleiðslu heimila.
0:00 - Upphaf IceWind og verkefni
7:50 - Mismunandi endingartími rafhlaðna
14:00 - Endurnýting rafhlaðna
20:00 - Breytingar á reglum um raforkuframleiðslu heimila
28:50 - Vindmyllur á Íslandi, litlar og stórar
32:30 - Elton the lonely wind turbine https://youtu.be/utEFhBgEAk0
37:30 - Framtíðarhorfur í rafbílamálum
-
Hjalti Þór Guðmundsson, forsöðumaður ökutækjatjóna hjá Sjóvá mætti í heimsókn. Við ræddum m.a. tryggingarmál rafbíla og framtíðarhorfur í þeim m.t.t. sjálfkeyrandi ökutækja.
0:00 - Þróunin á markaðnum og breytingar á skilmálum kaskótrygginga
12:00 - Undirvagnstryggingar á rafhlöðum
35:00 - Hleðslustöðvar og heimilistryggingar
41:50 - Meiri umræður um tryggingar sjálfkeyrandi bíla
49:40 - Endurnýting rafhlaðna
-
Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, kíkti í heimsókn og ræddi m.a. hlutverk Samorku og framtíðarsýn.
1:30 - Er nóg til af rafmagni fyrir rafbílavæðinguna?
15:20 - niðurfelling á gjöldum af rafbílum
21:10 - Framtíðaruppbygging raforkukerfisins
27:20 - Könnun á hleðsluhegðun fólks
-
Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, kíkti í heimsókn og ræddi m.a. hleðsluinnviði á dreifisvæði Norðurorku.
0:00 - Orkunotkun á veitusvæði Norðurorku og áhrif rafbíla á hana
16:00 - Hleðsluhegðun
19:30 - Floskuhálsarnir í kerfinu
23:40 - Önnur púsl í umhverfisvænni framtíð
25:40 - Þarf að virkja meira?
29:30 - Smávirkjanir heimila
37:20 - Biðtími á hraðhleðslum á Akureyri
38:30 - Tvöfalda rafkerfið á Akureyri
-
Tinna Andrésdóttir, lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu, kíkti til okkar og fór yfir hvaða álitamál eru að rata á þeirra borð útaf hleðsluinnviðum. Við fórum einnig yfir breytingu á fjöleignahúsalögunum og hugsanlegar framtíðarhorfur.
0:00 - Aðkoma Húseigandafélagsins að rafbílamálum
11:00 - Hófleg mánaðarleg þóknun húsfélags
17:50 - Þjónusta Húseigendafélagsins og framtíðarhorfur
-
Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri mætti til okkar og ræddi m.a. hlutverk Orkustofnunar, framtíðaráætlanir og hvernig þær hafa breyst.
1:00 - Hlutverk Orkustofnunar
7:30 - Umræða um orkusjóð og uppbyggingu innviða á landsbyggðinni
14:30 - Viðhorf stjórnmálaflokkanna: https://rafbilasamband.is/kosningar-2021/
20:00 - Hvort kemur á undan, hraðhleðslustöðvar á landsbyggðinni eða rafbílavæðing bílaleiguflotans?
24:20 - Upprunaábyrgðir raforku
26:00 - Þarf að virkja meira?
41:00 - Loftslagsmál
44:00 - Raforkuframleiðsla heimila og framtíðarmál
-
Við fengum Jóhannes Jóhannesson hjá Bílgreinasambandinu til að ræða breytingar í bifvélavirkjun, hlutverk Bílgreinasambandsins og framtíðarhorfur í rafbílamálum á Íslandi.
0:00 - aðkoma Bílgreinasambandsins að rafbílavæðingunni
8:30 - Eru rafbílar smíðaðir öðruvísi?
15:30 - Áskoranir sem frameliðendur rafbíla standa frammi fyrir
23:00 - Niðurfelling gjalda
31:00 - Rafbílavæðing stærri ökutækja
42:30 - Lokaorð
-
Við fengum Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB og Björn Kristjánsson, tækniráðgjafa hjá FÍB til að ræða hlutverk FÍB og framtíðarhorfur í rafbílamálum á Íslandi.
0:00 - Hlutverk FÍB
3:30 - Algengustu spurningar frá verðandi rafbílaeigendum
11:50 - Ókostir við tvinbíla, umtal um eldsneytisvélina sjálfa
14:30 - Sérstakar áhyggjur af rafbílum?
16:30 - Niðurfelling á virðisaukaskatti og upptaka vegtolla
23:20 - Framtíðin?
-
Við fengum Bjarna Ingimarsson, aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliðinu á Höfuðborgarsvæðinu í heimsókn og ræddum eldhættu í rafbílum, slökkviaðferðir og framtíðarsýn í þeim efnum.
0:00 - Viðbrögð slökkviliðsins við komu rafbíla
11.30 - Aðgerðir framleiðenda og undurbúningur viðbragðsaðila
16:30 - Lækkandi slysatíðni með sjálfkeyrandi bílum
22:30 - Nýjungar í slökkvistarfi og nauðsyn þess að passa upp á brunavarnir innanhús
-
Við fengum Gný Guðmundsson, yfirmann greininga og áætlana í raforkukerfinu hjá Landsnet í heimsókn. Ræddum áskoranir sem aukin eftirspurn eftir rafbílum hefur á flutningskerfi rafmagns.
0:00 - Hlutverk Landsnets og áskoranir vegna rafbílavæðingar
9:00 - Notkun rafmagns á landinu
15:00 - Afhending rafmagns á landsbyggðinni
22:40 - Áskoranir í rafbílavæðingu bílaleiguflotans
31:00 - Rafvæðing hafna og í flugi
36:00 - Langtímaáætlun Landsnets
39:00 - Framleiðsla raforku með öðrum leiðum en við erum að nýta í dag
-
Við fengum Brynjar Elefsen Óskarsson, framkvæmdastjóra sölusviðs hjá BL í heimsókn. Ræddum aukna eftirspurn eftir rafbílum og hvernig framleiðendur eru að takast á við hana.
0:00 - byrjun rafbílavæðingar á Íslandi
9:20 - Viðhald og þjónusta
14:10 - Algengustu spurningar frá nýjum rafbílaeigendum
24:00 - Skortur á rafbílum
25:40 - Breyttar áherslur í bílainnkaupum
28:40 - Framtíðarhorfur
36:20 - Bílaleiguflotinn
40:25 - Uppbygging innviða á landsbyggðinni
47:10 - Lokaumræða
-
Í öðrum þætti Rafbílahlaðvarpsins fáum við til okkar Kjartan Rolf Árnason, deildarstjóra kerfisstýringar hjá RARIK. Við fórum yfir þær áskoranir og þá framtíðarsýn sem RARIK hefur þegar kemur að innviðum fyrir hleðslu rafbíla.
Við byrjuðum á að ræða hlutverk RARIK og hvort það sé til nóg rafmagn í landinu.
Kaflar þáttarins:
26:20 - Breyttar framtíðaráætlanir
29:10 - Áskoranir í frístundabyggðum og á tjaldstæðum
34:55 - Bílaleiguflotinn og uppsetning hraðhleðslustöðva á landsbyggðinni
44:40 - Framtíð annarra orkugjafa í samgöngum
-
Í þessum fyrsta þætti Rafbílahlaðvarpsins fáum við til okkar Hafþór Hilmarsson O'Connor til að ræða allt frá upphafi rafbílamenningar á Íslandi, hleðsluinnviði og yfir í mýtur og algengar spurningar verðandi rafbílaeigenda. Þegar Hafþór ætlaði að eignast sinn fyrsta rafbíl komst hann að því að það var lítið um svör hjá söluaðilum hér á landi, svo hann ákvað að miðla sinni reynslu og þeirri þekkingu sem hann aflaði sér. Haffi, eins og hann er kallaður, heldur úti YouTube rás þar sem hægt er að læra ýmislegt sem viðkemur rafmangsbílum. Hann er líka með vefsíðuna haffi.is þar sem hann hefur safnað saman algengum spurningum um rafmagnsbíla og orkumál.
Kaflar þáttarins:
13:00 - Þægindin við rafbíla
20:00 - Mýtur um rafhlöðurnar
32:00 - Fórum yfir drægnina
43:00 - Dreifikerfi rafmagns og hleðslustöðvar
1:01:30 - Meðferð stjórnvalda