Episodi
-
Bæði flöskuskeyti Ævars og Verkís eru komin aftur heim til Íslands. Ævar segir frá ferðalaginu og fær svo Arnór Þóri Sigfússon frá Verkís í heimsókn til að útskýra betur hvernig í ósköpunum skeytin virka.
krakkaruv.is/aevar
krakkaruv.is/floskuskeyti -
Vísindafréttir verða allsráðandi í Vísindavarpi dagsins. Vísindakonu-LEGO, jógúrt og óeðlilega flókið hár eru bara nokkrar af fréttunum sem við ætlum að skoða.
Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan www.hvatinn.is
krakkaruv.is/aevar -
Episodi mancanti?
-
Í Vísindavarpi dagsins rannsökum við mengun sjávar og skoðum skjaldbökur.
krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi vikunnar skoðar Ævar fugla og hvernig maður getur skoðað þá.
Sérstakar þakkir fær Fuglavernd.
krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins fjöllum við m.a. um fyrsta geimfarið, geimrusl, hvers vegna við höfum tíu tær og tíu fingur og svo skoðum við sögu hjólabrettisins.
Sérstakar þakkir fær Vísindavefur HÍ.
krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi vikunnar rannsökum við hvernig apar myndu hljóma ef þeir gætu talað, hvers vegna hvalir eiga það til að bjarga öðrum dýrum, við skoðum skó úr plastrusli og veltum því fyrir okkur hvort hundar séu í alvörunni með samviskubit þegar þeir setja upp skömmustulegan svip.
Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan hvatinn.is
krakkaruv.is/aevar -
Fyrir stuttu síðan fundu vísindamenn glænýtt sólkerfi! Ævar fær Sævar Helga Bragason stjörnufræðing í heimsókn og spyr hann allt milli himins og jarðar um þessa merku uppgvötun.
krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins hlustar Ævar á furðuleg hljóð úr geimnum, skoðar kosti þess að horfa á kattamyndbönd á netinu og rannsakar skordýralýsi. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan hvatinn.is
http://krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar uppvakninga og risaeðluegg, geimfara, flugufótspor og fimm sekúndna regluna. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan hvatinn.is.
http://krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins skoðum við hvernig tungumál verða til, hvað esperantó er eiginlega (Vísbending: Esperantó ekki eitthvað sem þú pantar á kaffihúsi) og hvert fallegasta íslenska orðið sé.
http://krakkaruv.is/aevar -
Í þættinum verður farið yfir helstu vísindafréttir í heiminum í dag; Farsímar sem tengja má við heilann, umhverfisvænar líkkistur og tónlist fyrir ketti er bara brotabrot af því sem við fjöllum um í Vísindavarpi dagsins.
http://krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins setjum við íslenska tungumálið undir smásjánna og spjöllum við Evu Maríu Jónsdóttur, miðaldafræðing og starfsmann hjá Stofnun Árna Magnússonar.
www.krakkaruv.is/aevar -
Ævar heldur áfram að fjalla um sögu tölvunnar, internetið og erfiðasta tölvuleik sögunnar.
http://krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins rannsökum við sögu tölvunnar.
http://krakkaruv.is/aevar -
Í þætti dagsins rannsökum við hvernig piss getur hlaðið farsíma, skoðum hvort hægt sé að flýja fret og veltum því fyrir okkur hvernig það myndi ganga að fljúga flugvél á annarri plánetu.
http://krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins förum við um víðan völl. Við skoðum alls konar vísindi, fjöllum um stærðfræði og hvers vegna hún er mikilvæg, skoðum hrakfarir vísindamanna, rannsökum tilfinningar og merkjum mörgæsir.
http://krakkaruv.is/aevar -
Elín Björk Jónasdóttir frá Veðurstofu Íslands kíkir í heimsókn og talar um hvernig maður lærir að verða veðurfræðingur, svarar spurningum um eldingar og segir frá því þegar hún elti skýstróka!
http://krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri karla og konur úr sögu vísindanna. Tölvunarfræðingar, heimspekingar og landkönnuðir koma við sögu, ásamt manninum sem bjó til lotukerfið.
http://krakkaruv.is/aevar -
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri merkilegar konur úr sögu vísindanna.
http://krakkaruv.is/aevar -
Gestur þáttarins er Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, nemi í hugbúnaðarverkfræði. Við spjöllum um hvað forritun er, hvernig forritun og fótbolti tengjast og hvað /sys/tur eru. Svo fer Ævar yfir sögu internetsins og hvernig maður á að haga sér á því.
http://krakkaruv.is/aevar - Mostra di più