Folgen

  • Í þættinum ræðir Erla við Betu Reynis næringarfræðing, næringarþerapista og frumkvöðul um magnaða lífreynslu þegar hún greindist með taugasjúkdóminn Guillain–Barré og lamaðist en náði að vinna sig upp úr heilsuleysinu með hugarfari og lífstíl.

    Þær stöllur ræða um næringu almennt og ýmsar næringarráðleggingar varðandi t.d. blóðsykur, magasýrur, fræolíur, soja prótein, eplaedik, bætiefni og steinefni en einnig um hvaðan áhuginn á hollri og góðri næringu kemur, insúlínviðnám, að greina óþol, áhrif streitu á heilsu, frumkvöðlastarfsemi og að næring sé boðefni.

    Beta segir einnig að við eigum ekki endilega öll að vera sammála heldur hlusta á eigin huga og líkama til þess að hámarka heilsu okkar.

    Klappstýrur hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru:

    Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar. Góð næring fyrir líkama og sál!

    Heilsuhillan. Vandaðar vörur til bættrar heilsu og vellíðunar. Heilsuvara maímánaðar er Astaxanthin frá Algalíf. Hlustaðu á Heilsumolann um Astaxanthin hér í hlaðvarpinu ef þú vilt vita meira.

    Virkja. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri. Bókaðu frítt 20 mínútna kynningarfund um nám í markþjálfun á virkja.is.

    GeoSilica® er nýjasti samstarfsaðili hlaðvarpsins. GeoSilica® framleiðir 100% náttúruleg fæðubótarefni úr kísil í vökvaformi til daglegrar inntöku. Þú færð 15% afslátt í vefverslun GeoSilica með kóðanum: Heilsuerla

    Ungbarnasund Erlu. Næstu námskeið eru 3 vikna sumarnámskeið 8.-24.júlí, kennt tvisvar í viku fyrripart dags á þri og fim og svo hefst 6 vikna haustnámskeið 26.ágúst, kennt seinnipart á þriðjudögum.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Heilsuvara mánaðarins hjá HeilsuErlu og Heilsuhillunni er Astaxanthin.

    Astaxantín er öflugt andoxunarefni sem er aðallega unnið úr örþörungum (Haematococcus pluvialis) og gefur t.d. laxi, rækjum og flamingófuglum bleikarauðan litinn. Það er gagnlegt af nokkrum ástæðum en Astaxanthin hefur verið mikið rannsakað og er talið meðal annars:

    •styðja við húðheilsu – bæði gegn sólarskemmdum og öldrun húðarinnar

    •bæta orku og úthald – vinsælt meðal íþróttafólks

    •styðja við hjarta- og æðakerfið

    •draga úr bólgum og verkjum í liðum

    •vernda heila- og augnheilsu

    •og styrkja ónæmiskerfið

    Hlustaðu á allan þáttinn fyrir frekari upplýsingar um þetta magnaða bætiefni.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þriðja viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr.Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heilsumissi í kjölfar áfalla. Hvernig hafa áföll áhrif á heilsu okkar? Hvað er að gerast í heilanum? Hvað er að gerast í líkamanum? Geta áföll setið í taugakerfinu? Er hægt að ná bata?

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru:

    Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara!

    Heilsuhillan. Vandaðar vörur til bættrar heilsu og vellíðunar. Heilsuvara maí er Astaxanthin frá Algalíf. Munum að taka inn Astaxanthin þegar sólin er farin að láta sjá sig 🌞.

    Virkja. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri. Bókaðu 20 mínútna kynningarfund um nám í markþjálfun þér að kostnaðarlausu.

    GeoSilica® er nýjasti samstarfsaðili hlaðvarpsins. GeoSilica® framleiðir 100% náttúruleg fæðubótarefni úr kísil í vökvaformi til daglegrar inntöku. Þú færð 15% afslátt í vefverslun GeoSilica með kóðanum: Heilsuerla

    Ungbarnasund Erlu. Næstu námskeið eru 3 vikna sumarnámskeið 8.-24.júlí en hægt er að ,,stökkva" inn í vornámskeið sem lýkur 27.maí á meðan pláss leyfir.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í öðru viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr.Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um forvarnir í geðheilsu. Hverjar eru helstu forvarnir í geðheilsu og eru þær árangursríkar? Afhverju er aukning í streitu og kulnun? Hvaða áhrif lífsstíll og kröfurnar í nútímasamfélagi? ofl

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru:

    Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara!

    Heilsuhillan. Vandaðar vörur til bættrar heilsu og vellíðunar. Heilsuvara maí er Astaxanthin frá Algalíf. Munum að taka inn Astaxanthin þegar sólin er farin að láta sjá sig 🌞.

    Virkja. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri. Bókaðu 20 mínútna kynningarfund um nám í markþjálfun þér að kostnaðarlausu.

    GeoSilica® er nýjasti samstarfsaðili hlaðvarpsins. GeoSilica® framleiðir 100% náttúruleg fæðubótarefni úr kísil í vökvaformi til daglegrar inntöku. Þú færð 15% afslátt í vefverslun GeoSilica með kóðanum: Heilsuerla

    Ungbarnasund Erlu. Næstu námskeið eru 3 vikna sumarnámskeið 8.-24.júlí en hægt er að ,,stökkva" inn í vornámskeið sem lýkur 27.maí á meðan pláss leyfir.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í fyrsta viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr.Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heim geðlæknisins og geðlæknisfræðina. Hvernig starfar geðlæknir og hefur starfið breyst mikið? Eru tengsl á milli þarmaflóru og geðheilsu? Hver er helsti misskilningurinn um geðsjúkdóma? ofl

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru:

    Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara!

    Heilsuhillan. Vandaðar vörur til bættrar heilsu og vellíðunar. Heilsuvara maí er Astaxanthin frá Algalíf. Munum að taka inn Astaxanthin þegar sólin er farin að láta sjá sig 🌞.

    Virkja. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri. Bókaðu 20 mínútna kynningarfund um nám í markþjálfun þér að kostnaðarlausu.

    GeoSilica® er nýjasti samstarfsaðili hlaðvarpsins. GeoSilica® framleiðir 100% náttúruleg fæðubótarefni úr kísil í vökvaformi til daglegrar inntöku. Þú færð 15% afslátt í vefverslun GeoSilica með kóðanum: Heilsuerla

    Ungbarnasund Erlu. Næstu námskeið eru 3 vikna sumarnámskeið 8.-24.júlí en hægt er að ,,stökkva" inn í vornámskeið sem lýkur 27.maí á meðan pláss leyfir.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Næsti samstarfsaðili sem ég kynni til leiks er Spíran.

    Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara!

    Spíran er dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum við Álfabakka 6 í Reykjavík. Hann er fjölskylduvænn bistró-staður sem leggur áherslu á hollan og góðan mat, gerðan frá grunni úr gæða hráefnum og lagaður af mikilli ást.

    Opið er alla virka daga frá kl.11 til 20 og um helgar frá kl. 11 til 17.

    Þú getur valið þér einn af réttum dagsins kjöt, fiskur og grænmetisréttur í hádeginu (11-14) eða á kvöldin (17-20) og fylgir súpa dagsins með ásamt uppáhelltu kaffi ef borðað er á staðnum.

    Matseðillinn er breytilegur sem þýðir að það er alltaf eitthvað nýtt og ferskt í matinn á hverjum degi. Einnig býður Spíran upp á vöfflur, kökur og ýmislegt bakkelsi sem er lagað á staðnum.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu.

    Fyrst í spjall til mín var Steinunn Ósk Valsdóttir, markaðsstjóri Geo Silica sem er nýjasti samstarfsaðilinn.

    Steinunn segir okkur frá fyrirtækinu og gagnsemi kísils en GeoSilica® framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku, sem hjálpa til við endurnýjun líkamans frá toppi til táar.

    Fyrirtækið vinnur steinefni úr jarðhitasvæðum Íslands með byltingarkenndri framleiðsluaðferð og þróar 100% náttúrulegar og vegan-vottaðar gæðavörur. Kísill er eitt algengasta steinefni heims og finnst víðsvegar í náttúrunni.

    Hlustendur fá 15% afslátt í netverslun GeoSilica með kóðanum Heilsuerla


    Áhugasamir geta fundið GeoSilica á Instagram og Facebook

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þætti vikunnar ræðir Erla við Margréti Gauju Magnúsdóttur sem er að eigin sögn orkusprengja með mjög litríka og skrautlega ferilskrá. Hún starfar nú sem skólastjóri Lýðskólans á Flateyri og brennur fyrir óformlega menntakerfinu, úrræðum og velferð ungmenna.

    Við ræddum um lýðskóla, þar sem nemendur koma í skólann af innri áhuga og forvitni, fá hrós, hvatningu og stuðning. Engar einkunnir og ekkert vesen. Í lýðskóla fæst frelsi til að mennta og þroska nemendur með óhefðbundnum en árangursríkum leiðum. Þar þjálfast nemendur í félagslegum samskiptum og öðlast aukið sjálfstraust.

    Þegar við stígum út fyrir þægindarammann þá verður mikill innri vöxtur og í hinu óformlega geta gerst svo magnaðir töfrar. Við ræðum einnig um mikilvægi félagslegrar heilsu, og hvernig börn og ungmenni hafa stórkostlega þörf fyrir það að tilheyra.

    Margrét Gauja hefur upplifað það að missa heilsuna og fór eftir það í gríðarlega naflaskoðun. Hún áttaði sig á því að hún var búin að taka heilsuna sem sjálfsagðan hlut og tók í kjölfarið ákvörðun um það að vakna aldrei aftur veik vitandi það að hún bjó til það ástand sjálf, vísvitandi.

    Við ræðum einnig mikilvægi hugarfars og þess að staldra við og gefa sjálfum sér þá gjöf að valdeflast, finna sig, styrkja sig og komast í einhvers konar flæði. Þá er gott að spyrja sig spurninga eins og hvað ætla ég að taka út úr þessu?, hvernig ætla ég að nýta mér þessa reynslu til þess að koma út úr þessu standandi og sterkari?

    Margrét Gauja er einnig jöklaleiðsögumaður og athafnastýra hjá Siðmennt. Hún elskar að gifta fólk á alls konar óhefðbundnum stöðum, t.d. uppi á jökli og segist stundum vera jafnvel spenntari en brúðhjónin. Henni finnast það ótrúleg forréttindi að vinna við eitthvað þar sem hún fer hlæjandi í vinnuna og hlæjandi heim.

    Að lokum fáið þið að heyra magnaða fæðingarsögu Margrétar Gauju þegar hún fæddi dóttur sína í dyragættinni heima hjá sér.

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru:

    Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara!

    Heilsuhillan. Vandaðar vörur til bættrar heilsu og vellíðunar. Heilsuvara maí er Astaxanthin frá Algalíf. Munum að taka inn Astaxanthin þegar sólin er farin að láta sjá sig 🌞.

    Virkja. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri. Bókaðu 20 mínútna kynningarfund um nám í markþjálfun þér að kostnaðarlausu.

    GeoSilica® er nýjasti samstarfsaðili hlaðvarpsins. GeoSilica® framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku, sem hjálpa til við endurnýjun líkamans frá toppi til táar. Með byltingarkenndri framleiðsluaðferð eru steinefni unnin úr jarðhitasvæðum Íslands og þróuð hafa verið 100% náttúrulegar og vegan-vottaðar gæðavörur. Kísill er eitt algengasta steinefni heims og finnst víðsvegar í náttúrunni. Hann gegnir mikilvægu hlutverki í mannslíkamanum og GeoSilica auðveldar upptöku hans.

    Ungbarnasund Erlu. Næstu námskeið eru 3 vikna sumarnámskeið 8.-24.júlí en hægt er að ,,stökkva" inn í vornámskeið sem lýkur 27.maí á meðan pláss leyfir.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þætti vikunnar ræðir Erla við Valdimar Þór Svavarsson um meðvirkni og þau áhrif hún getur haft á líf okkar og heilsu. Meðvirknin er lævíst og lamandi fyrirbæri sem snertir fleiri en flesta grunar.

    Þau ræða um hvað meðvirkni er, hvernig hún þróast og hvernig hún getur birst í lífi okkar en einnig um heilsumissi Valdimars eftir að hann var bitinn af skógarmítli, ytra og innra virði, hvatvísi, ADHD, hugleiðslu, áhrif meðvirkni á líkamlega og andlega heilsu, hlutverk hreyfingar, meðvirkni módel Piu Mellody og fleira.

    Valdimar hefur um margra ára skeið starfað við ráðgjöf og meðferðarvinnu sem stuðlar að bættri andlegri, sálrænni og líkamlegri líðan.

    Valdimar er með sérfræðimenntun og yfirgripsmikla þekkingu á meðvirknihugtakinu og síðastliðið haust fóru hann og Berglind kona hans af stað með Meðvirknipodcastið sem ég mæli mikið með að hlusta á!

    Í Meðvirknipodcastinu er ljósi varpað á skuggana og ekkert dregið undan í umfjöllun um þær ótrúlega alvarlegu birtingamyndir og afleiðingar sem meðvirknin hefur í lífinu okkar.

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru:
    Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum. Sumarsalat HeilsuErlu er væntanlegt á matseðil Spírunnar í kringum Sumardaginn fyrsta.

    Heilsuhillan. Vandaðar vörur til bættrar heilsu og vellíðunar. Heilsuvara apríl er Probi Original mjólkursýrugerlar sem eru afar mikilvægir fyrir þarmaflóruna sem spilar lykilhlutverk í lífi okkar og heilsu.

    Virkja. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri. Bókaðu 20 mínútna kynningarfund um nám í markþjálfun þér að kostnaðarlausu.

    Ungbarnasund Erlu. Næstu námskeið, 6 vikna námskeið 22.apríl-27.maí og 3 vikna sumarnámskeið 8.-24.júlí.





    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þættinum ræðir Erla við Eygló Fanndal Sturludóttur, unga og efnilega íþróttakonu og læknisfræðinema um hvað þarf til þess að ná góðum árangri, þyngdarflokka, jafnvægi, heilbrigðan lífsstíl, imposter syndrome og hvernig það er að vera afreksíþróttakona á Íslandi og fleira.

    Eygló er afrekskona í Ólympískum lyftingum sem hefur verið á þvílíkri „siglingu" undanfarið. Hún fékk nýverið tilnefningu til lyftingakonu Evrópu og það er ekki að undra því að þyngdirnar sem hún lyftir eru ekkert grín. Hún snarar t.d. 109 kg, tekur 137kg í Clean&Jerk og 180kg í bakhnébeygju.

    Samhliða stífum æfingum er Eygló á fjórða ári í læknisfræði og segir að það gangi bara ótrúlega vel að sinna þessu öllu með góðu skipulagi.

    Eygló er afar samviskusöm og segist hafa náð þessum góða árangri með aga, þolinmæði og vinnusemi. Hún hefur t.d. ekki misst úr eina æfingu á undanförnum árum og hugtakið „consistency is key" á svo sannarlega við hér.

    Eygló var grátlega nálægt því að komast á síðustu Ólympíuleika en hún var aðeins 2 sætum frá og stefnir nú ótrauð á Ólympíuleikana í Los Angeles 2028.

    Áhugasamir geta fylgst með Eygló á Instagram

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru:
    @spiran.is Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.
    @heilsuhillan Vandaðar vörur til bættrar heilsu og vellíðunar.
    @virkja Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þættinum ræðir Erla við Kristján um alkóhólisma, fíknisjúkdóma, afneitun, að taka ábyrgð, þakklæti, erfiðar tilfinningar, hvað það er mikilvægt að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina og nýtt upphaf.

    Ég bauð honum til mín eftir að hafa lesið falleg skrif hans á FaceBook í byrjun árs. Hann sagði þá frá því að eftir 17 ár edrú hafi sjúkdómurinn náð að komast inn fyrir varnir hans því hann hafði ekki sinnt viðhaldi á batanum.

    Kristján segir að við hafi tekið 2 ár af ógeði sem hann lagði á fjölskyldu og vini. En þann 23. Ágúst síðastliðinn rataði hann aftur inn í AA samtökin og er búinn að vera edrú síðan, einn dag í einu.

    Í dag nýtir hann þessa lífsreynslu til að hjálpa öðrum sem eru í sömu sporum!

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru:
    Nettó. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!
    Spíran. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.
    Heilsuhillan. Nutrilenk er mest selda liðbætiefnið á Íslandi!
    Virkja Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri.

    P.S. Ég læt fylgja með pistilinn sem Kristján setti á FB um áramótin:

    Jæja, síðasti dagur ársins 2024. Á morgun er nýtt ár, nýtt upphaf, ný tækifæri. Það er óhætt að segja að fyrir mig hafi 2024 verið ár breytinga og nýrra upplifana. Sumar slæmar, aðrar góðar. Eins og lífið er. Búinn að læra helling.

    Hér eru 10 atriði sem ég er búinn að læra meðal annars:

    1. Ég þarf að vera tilbúinn að taka höfuð út úr óæðri endanum, hlusta, heyra og sjá. Vera opinn fyrir nýjum hugmyndum, sjónarmiðum annarra, sjá brestina mína og hvaða áhrif þeir hafa á allt mitt líf og fólksins í kringum mig.

    2. Ég þarf að taka ábyrgð. Vera tilbúinn að viðurkenna og gangast við því hvernig ég er og breyta því sem ég get breytt og þarf að breyta. Á sama tíma sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.

    3. Ekki vera í afneitun og hroka og neita að horfast í augu við erfiðan sannleika. Afneitun og hroki eru varnarviðbrögð sem ég þarf ekki lengur. Ég get tekist á við mig, gengist við brestunum og breytt þeim.

    4. Ég hef ekkert að óttast. Það verður alltaf allt í lagi. Eins og stóð uppá vegg á tattoo stofunni: "Everything will be OK in the end. If it's not OK, it's not the end".

    5. Erfiðar tilfinningar og erfið reynsla mótar mig, þroskar mig, skapar mig. Lætur mig fyllast þakklæti yfir því góða. Ef það væri aldrei rigning þá kynni ég ekki að meta sólskinið. En málið er að ég þroskast bara ef ég leyfi þessu að vera til staðar en hleyp ekki frá því og deyfi mig eða ver mig með hroka, gremju, afneitun og einangrun.

    6. Ég verð að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina. Ég get ekki haldið í gremju, pirring, ótta og skömm. Það sem gerðist, gerðist. Ég get ekki breytt því núna. Ég get bara breytt því hvað ég geri með allt sem er liðið, lært af því og breytt mínum viðbrögðum héðan í frá. Ef ég ætla að halda í einhverja reiði eða skömm þá er ekki pláss fyrir umburðarlyndi, traust og kærleika. Eitt skemmt bláber í fötunni smitar útfrá sér og á endanum er öll fatan skemmd. Svo ég vitni í legendary söngleik: "Let it go".

    7. Ég get þetta ekki einn svo ég er hættur að reyna það. Ég þarf á ykkur að halda. Ég þarf að treysta. Stuðningur fjölskyldu og ástvina er ómetanlegur og ég er sjúklega þakklátur.

    8. Ég þarf að iðka þakklæti. Það eru hinar sönnu gjafir. Ég hef allt sem ég þarf og vel rúmlega það. "Happiness is not about getting what you want but wanting what you have".

    9. Ég þarf að vera duglegur og framkvæma. Ekki takast á við allan heiminn í einu. Byrja á stóru hlutunum og vinna mig svo í gegnum þetta smátt og smátt, einn dag í ei

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Heil og sæl kæru hlustendur, í tilefni þess að þessi þáttur er sá hundraðasti sem ég gef út þá langar mig að koma með smá samantekt af því hvað ég hef lært á þessu ferli og smá vangaveltur um heilsu.

    Ég hef sem sagt gefið út 83 viðtöl og þetta er 17. Heilsumolinn sem gerir samtals 100 þætti, hvorki meira né minna.

    Það sem ég upplifi þegar ég tek þetta saman er Stolt og þakklæti. Ég er virkilega stolt af sjálfri mér að hafa dembt mér út í þetta verkefni haustið 2023 án þess að ofhugsa heldur bara sjá hvert það myndi leiða mig. Mig óraði þó ekki fyrir því að einu og hálfu ári síðar yrði ég búin að gefa út 100 þætti og fá ótal frábæra gesti til mín í spjall. Ég upplifi einnig gríðarlegt þakklæti fyrir ykkur öll! Bæði viðmælendur, hlustendur og samstarfsaðila hlaðvarpsins. Takk fyrir að hjálpa mér að gera þessa hugmynd að veruleika.

    En hvað hef ég nú lært á þessu heilsuferðalagi og hvað stendur upp úr? Ég fer yfir það í þessum þætti. <3

    Það sem ég tel að þurfi til þess að ,,þrífast" og til að upplifa vellíðan og jafnvægi í lífinu er að:

    Hafa tilgang.Tilheyra. (Félgslega heilsan) Næra okkur vel, hvort sem það er líkamlega, andlega og félgslega.Minnka streitu. Hvíld er ekki veikleiki!Tengjast náttúrunni meira! Minnkum kyrrsetu. Tileinka okkur gróskuhugarfar/vaxtarhugarar. Sjá tækifæri í öllu en ekki hindranir. Losa okkur við allt eða ekkert hugsunarhátt. Vera þakklát!

    Á þessu dásamlega ferðalagi sem hlaðvarpið er finnst mér ég hafa vaxið um mörg númer andlega og er núna orðin uppfærð útgáfa af mér en slík uppfærsla er reyndar ekki ókeypis, við þurfum að hafa fyrir henni með innri sjálfsvinnu og aukinni sjálfsþekkingu

    Það fer eftir því á hvaða stað við erum í lífinu hvað við ,,heyrum” þannig að ég hvet þig til þess að hlusta á eldri þætti aftur því að ég get lofað þér að þú tekur eitthvað öðruvísi eftir í annað sinn.

    Hlustaðu á þáttinn hér eða á Spotify eða Apple Podcasts.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þættinum ræðir Erla við hjónin og læknana, Kjartan Hrafn Loftsson og Teklu Hrund Karlsdóttur um Lífsstílslækningar, 6 grunnstoðir heilsu, þróun í læknavísindum, samfélagssjúkdóma, ME-sjúkdóminn, blóðsykurstjórnun og fleira auk þess hversu áhrifaríkar lífsstílsbreytingar geta verið til að fyrirbyggja eða bæta ástand flestra langvinna sjúkdóma og auka lífsgæði.

    Tekla og Kjartan eru stofnendur fyrirtækisins Sound Health og leggja sérstaka áherslu á hugmyndafræði lífsstílslækninga (lifestyle medicine) sem byggir á vísindalegum grunni og gagnreyndum aðferðum til að fyrirbyggja, bæta meðferð og jafnvel snúa við lífsstílstengdum sjúkdómum

    Þau stofnuðu hóp á Facebook, Félag lífstílslækninga á Íslandi þar sem allir áhugsamir eru velkominir.

    Til þess að hlaðvarp eins og Með lífið í lúkunum geti vaxið og dafnað er mikilvægt að vera með góða stuðningsaðila á kantinum. Þessi þáttur er gerður í samstarfi við þessi dásamlegu fyrirtæki:

    Nettó- netto.is. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!

    Spíran- spiran.is. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.

    Heilsuhillan- artasan.is. Heilsuvara mars er Digest Gold meltingarensím.

    Virkja- virkja.is. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur, tveggja barna móður og vélaverkfræðing um lífið og tilveruna, ófrjósemi, foreldrahlutverkið, heilbrigðar venjur, andlega heilsu, félagskvíða, átröskun, heilbrigt samband við mat, þakklæti, frestunaráráttu, ADHD, ofbeldissamband, samfélagsmiðla og fleira.

    Katrín Edda sem búsett er í Þýskalandi hefur vakið mikla athygli á Instagram þar sem hún tjáir sig filterslaust og af mikilli einlægni með heilbrigðri nálgun um daglegt líf sitt og fjölskyldunnar

    Hún segist hafa verið vægast sagt trylltur unglingur sem hugsaði ekkert út í afleiðingar gjörða sinna og hefur á síðan gengið í gegnum erfiðar lífsreynslur sem hafa mótað hana mikið. Í viðtalinu segir hún frá því að árið 2019 varð ákveðinn vendipunktur í lífi hennar og nú lifir hún lífinu til fulls.

    Áhugasamir geta fylgt Katrínu Eddu á Instagram

    Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru:
    Nettó- netto.is. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!

    Spíruna- spiran.is. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.

    Heilsuhilluna- artasan.is. Heilsuvara febrúar er Digest Gold meltingarensím.

    Virkja- virkja.is. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þessu áhugaverða spjalli kynnumst við Úlfari Jóni Andréssyni sem fer ekki hefðbundnar leiðir í lífinu. Hann er fæddur og uppalinn í Hveragerði og býr þar ásamt eiginkonu sinni og tveimur litlum börnum. Við ræðum um uppeldið og lífsstíl hans sem felst mikið í útivist, t.d. að gista í hellum, sofa undir berum himni og jafnvel í snjóstormi, elda mat á hverum, skauta á gígjum og baða sig á leyndum baðstöðum.

    Úlfar og kona hans hafa börnin sín með í flestum ævintýrum sínum og draumurinn er að eignast 10 börn. Þau gista oft uppi á heiði í húsbíl og hann fer stundum með þau í morgunævintýri og þau baða sig í náttúrulaugum fyrir leikskóla og vinnu. Þau fara einnig saman í útilegur, á brimbretti og hjólaferðir.

    Úlfar er hluti af litlu fjölskyldufyrirtæki, Iceland Activities sem sérhæfir sig í ferðaþjónustu og hópferðum. Iceland Activities hefur sérstöðu á margan hátt þegar kemur að náttúru og útivist vegna gríðarmikillar þekkingar sem hefur skapast á ferðum fjölskyldunnar síðustu 35 ár. En foreldrar Úlfars tóku hann og systur hans með í öll ævintýra strax frá unga aldri.

    Þau eru eitt af fáum fyrirtækjum með það markmið að sinna fólki á öllum aldri. Þar sem þau aðlaga hverja ferð að getu, áhuga og aldri þeirra sem ferðast með þeim. Hægt er að fara í alls konar ferðir og til dæmis er hægt að fara á alveg óþekkta staði eins og hella eða leynda baðstaði. Um er að ræða gönguferðir, útsýnisferðir, hellaferðir, jeppaferðir, rafmagnsfjallahjólaferðir, norðurljósaferðir, hópefli, brimbrettaferðir og aðrar sérsniðnar ferðir.

    Fylgist með ævintýrum Úlfars á Instagram

    Viðtalið var tekið upp í Podcast stöðinni og hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
    Nettó- netto.is. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!
    Spíruna- spiran.is. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.
    Heilsuhilluna- artasan.is. Heilsuvara febrúar er Digest Gold meltingarensím.
    Virkja- virkja.is. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa.

    Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. ÍSÍ styðst við ráðleggingar Embætti landlæknis um hreyfingu. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embætti Landlæknis.

    Lífshlaupið stendur fyrir:
    Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
    Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
    Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
    Hreystihópar 67+ í þrjár vikur í febrúar

    Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

    Vinnustaðir, skólar og hreystihópar 67+ eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

    Ég hvet alla til þess að taka þátt, margt smátt gerir eitt stórt og hreyfing er svo gífurlega mikilvæg til þess að halda góðri alhliða heilsu og bæta lífsgæði.

    Nánari upplýsingar eru inn á www.lifshlaupid.is

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þætti vikunnar ræðir Erla við Hildu Hrönn Guðmundsóttur sérnámslæknir í heimilislækningum um heilsueflandi vinnustaði, vellíðan, hamingju, viðhorf, menningu, kulnun, uppbyggingarleyfi, tækifæri á Íslandi og fleira.

    Hilda Hrönn starfar á Heilsugæslunni á Akureyri og brennur fyrir fyrirbyggjandi læknisfræði og lýðheilsu og hefur sérstakan áhuga á heilsu lækna og heilbrigðisstarfsfólks almennt.

    Hún segir meðal annars frá því hvernig hugmynd hennar að rannsóknar- og gæðaverkefni í sérnámi hennar kviknaði, en hugmyndin er að innleiða heilsueflandi vinnustað á heilsugæslunni á Akureyri með það markmið að reyna að draga úr kulnun starfsfólks, auka hamingju og vellíðan á vinnustaðnum.

    Hilda Hrönn hvetur alla til þess að taka þátt í þessar heilueflandi vegferð, því saman getum við breytt menningu og viðhorfinu í heilbrigðiskerfinu og byggt upp heilsusamlegra umhverfi fyrir okkur öll.

    Viðtalið var tekið upp í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hlaðvarpið Með lífið í lúkunum er unnið í samstarfi við:
    Nettó- netto.is.
    Spíruna- spiran.is.
    Heilsuhilluna- artasan.is.
    Virkja-markþjálfunarskóla - virkja.is

    P.s. Um leið hvet ég alla sem hlusta að kynna sér Lífshlaupið sem hefst 5.febrúar!

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum, spjallar Erla við stórskemmtilegu vinkonurnar, Gullu og Lydíu Ósk sem halda úti hlaðvarpinu Í alvöru talað!

    Í þættinum ræða þær meðal annars um áföll, erfiða æsku, kulnun, streitu, veikindaleyfi, skömm, nauðsynlegar samfélagslegar breytingar og sjálfsvinnu.

    Þær stöllur eru að eigin sögn miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og jógakennari en Gulla er förðunarfræðingur, áhugaleikari og tískudrós. Einkunnarorð þeirra: Við sameinumst í mennskunni með dass af fíflagangi, lýsa vel spjalli okkar og þeirra eigin hlaðvarpi en markmið þeirra er að gera gagn í samfélaginu, tala um allar hliðar manneskjunnar og samfélagsins, bæði um það sem er erfitt og það sem er auðvelt.

    Búið ykkur undir líflegt og skemmtilegt spjall með hlátrasköllum í bland við einlægar frásagnir og lífsreynslur.

    Viðtalið var tekið upp í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hlaðvarpið Með lífið í lúkunum er unnið í samstarfi við:
    Nettó- netto.is.
    Spíruna- spiran.is.
    Heilsuhilluna- artasan.is. Heilsuvara janúar er Nutrilenk.
    Virkja-markþjálfunarskóla - virkja.is

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf?

    Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkamanum.

    Þessi djúpslökun er rúmlega 30 mínútna leidd hugleiðsla sem er einföld en afar áhrifarík leið til að gleyma stað og stund, beina athyglinni inn á við, vera í meðvitund og auka vellíðan.

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  • Í þættinum ræðir Erla við hjónin Inga Torfa Sverrisson og Lindu Rakel Jónsdóttur.

    Þau hjónin hafa á síðust árum hjálpað ótal einstaklingum að bæta heilsu sína og hafa hannað og komið á laggirnar smáforritinu Life Track sem getur stutt við heilsuferðalag fólks á margvíslegan hátt.

    VIð ræddum um hugmyndafræðina á bakvið appið, hvernig það kom til að fasteignasali og bankastarfsmaður hættu í vinnunni sinni í miðju covid og fóru að hjálpa fólki að bæta heilsuna.

    Við ræddum um macros, heildræna heilsu, svefn, hreyfingu, mataræði, kosti og galla þess að telja hitaeiningar og prótein, kolvetni, fitu og trefjar, næringarlæsi, næringarþéttni og margt fleira.

    Áhugasamir geta fundið upplýsingar á heimasíðunni þeirra eða Instagram

    Viðtalið var tekið upp í Podcast stöðinni og hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
    Nettó- netto.is. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!
    Spíruna- spiran.is. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.
    Heilsuhilluna- artasan.is. Heilsuvara janúar er Nutrilenk Gold.
    Virkja- virkja.is. Markþjálfunarskóli sem stuðlar að innri vexti samhliða árangri.




    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!