Folgen
-
Hjörtur Leó Guðjónsson snýr aftur og í þessum þætti hitar hann upp fyrir veturinn ásamt þjálfurunum Eyþóri og Carlos og leikmönnum meistaraflokkana, þeim Kötlu Maríu og Jóni Þórarni. Með þeim er svo auðvitað íþróttastjórinn og einn af okkar fastagestum Örn Þrastar.
Næstu leikir:
Fös 13. sept Selfoss - Grótta mfl kvk
Mið 18. sept Valur - Selfoss mfl kvk
Lau 21. sept Selfoss - Haukar 2 mfl kk -
Meistaraflokkarnir eru komnir í sumarfrí, alla vega frá keppni. Hjörtur Leó fékk til sín fulltrúa beggja liða til að gera upp veturinn og létt inn í framtíðina.
Í fyrri hlutanum koma þeir Þórir Ólafsson, þjálfari mfl kk og goðsögn í lifandi lífi, Jón Þórarinn Þorsteinsson og Hannes Höskuldsson leikmenn Selfoss.
Í seinni hlutanum faum við svo Eyþór Lárusson þjálfara mfl kvk og með honum mættu Tinna Sigurrós Traustadóttir og Hulda Dís Þrastardóttir.
Skellið þessu í tækið og hlustið, aldrei að vita nema þið lærið eitthvað nýtt. -
Fehlende Folgen?
-
Hún er komin, stærsta vika ársins! Bikarvikan og stelpurnar okkar verða í eldlínunni á fimmtudagskvöldið. Til að hita upp fyrir undanúrslitaleikinn fékk Hjörtur Leó góða gesti. Eyþór Lárusson, Harpa Valey Gylfadóttir og Tinna Soffía Traustadóttir kíktu í SelfossTV hljóðverið og hituðu upp fyrir veisluna sem framundan er.
Næstu leikir:
Fim 7. mars Selfoss-Stjarnan mfl kvk
Fös 8. mars Selfoss U-Grótta U mfl 2. deild kk
Lau 9. mars Vonandi bikarúrslit mfl kvk
Fim 14. mars Selfoss-Berserkir mfl kvk -
Ný vika, ný tækifæri. Hjörtur fékk þá fóstbræður, Arnar Daða og Krumma ásamt Árna Geir til að fara yfir allt þetta helsta sem hefur verið um að vera hjá Selfoss handbolta síðustu vikur. Þær hafa verð upp og niður eins og lífið. Krummi mætti auðvitað með skemmtidagskránna, líf og fjör í SelfossTV hljóðverinu.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Fim 22. feb Fram - Selfoss mfl kk
Fös 23. feb Selfoss - FH kvk
Fös 1. feb Selfoss - HK kk
Sun 3. mars Selfoss U - Grótta U 2. deild kk -
Hjörtur Leó fer yfir síðustu vikur og hitar upp fyrir bikarinn hjá stelpunum okkar ásamt þeim Erni Þrastar, Árna Geir og Helga "eina sanna" Hlyns.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Þri 6. feb 18.00 Selfoss - KA/Þór mfl kvk
Mið 7. feb 17.45 Hvíti Riddarinn - Selfoss U 2. deild kk
Fim 8. feb 19.30 Selfoss - FH mfl kk
Fös 9. feb 18.00 Selfoss - Víkingur mfl kvk
Mið 14. feb 19.30 Valur - Selfoss mfl kk -
Hjörtur Leó Hélt smá jólaboð í SelfossTV hljóðverinu. Í fyrri hluta þáttarins fór hann yfir málin með Eyþóri Lárussyni þjálfara mfl. kvenna, Perlu Ruth Albertsdóttur leikmanni Selfoss og íslenska landsliðsins og Árna Geir Hilmarssyni fastagestur í Selfoss hlaðvarpinu. Í seinni hlutann mættu þeir Þórir Ólafsson þjálfari mfl karla, Einar Sverrisson leikmaður Selfoss og Árni Þór Grétarsson framleiðandi Selfoss hlaðvarpsins ásamt einhverjum fleiri höttum.
Um áramót er við hæfi að líta um öxl og gera upp árið og taka svo fagnandi á mót því nýja og það er nákvæmlega það sem við í Selfoss hlaðvarpinu gerðum í þessum þætti.
Selfoss hlaðvarpið sendir hlustendum sínum um veröld alla hugheilar kveðjur um gleðilegt nýtt ár og þakkar innilega fyrir samfylgdina á árinu sem var að líða.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Lau 6. jan Selfoss - Fjölnir mfl kvk
Mið 10. jan Selfoss U - Grótta U 2. deild kk
Fös 12. jan Ísland - Serbía EM
Sun 14. jan Fram U - Selfoss mfl kvk
Sun 14. jan Ísland - Svartfjallaland EM
Þri 16. jan Ísland - Ungverjaland EM -
Það var glatt á hjalla þegar Hjörtur Leó bauð þeim Hrafni Erlings, Erni Þrastar og Hannesi Höskulds inn í hlýjuna í SelfossTV stúdíóið. Þunglyndi á Seltjarnarnesi, skemmtiferð á Akureyri og sá stóri, forsetabikarinn. Allt þetta og miklu meira til. Jú og ekki má gleyma skemmtidagskrá Krumma.
Selfoss Hlaðvarpið - Eins og smjör í þín eyru! -
Hjörtur Leó er orðinn spenntur fyrir HM og er himinlifandi yfir góðum sigri strákanna á Haukum um daginn. Linda Björk Hilmarsdóttir, Guðrún Herborg Hergeirsdóttir og fyrirliðinn Richard Sæþór Sigurðsson mættu í SelfossTV hljóðverið til Hjartar og fóru yfir málin.
Auk þessa alls tók Hjörtur upp símann og náði sambandi beint til Noregs og spjallaði við nýjasta landsliðsmann okkar Selfyssinga, Kötu Maríu Magnúsdóttur. Veislan er að hefjast!
Dagskráin framundan:
HM
Fim 30. nóv kl 17 Ísland - Slóvenía
Lau 2. des kl 17 Ísland - Frakkland
Mán 4. des kl 17 Ísland - Angóla
Mfl kk
Fim 30. nóv kl 19.30 Grótta - Selfoss
Lau 9. des kl 15.00 KA - Selfoss
fim 14. des kl 19.30 Selfoss - Afturelding -
Hjörtur Leó fékk til sín lauflétta gesti, Hrafn Erlingsson, Arnar Daði Brynjarsson og góðkunningja þáttarins Örn Þrastar.
Það er óhætt að segja að létt hafi verið yfir mönnum er þeir fóru yfir málefni líðandi stundar. Fljúgandi gengi hjá mfl. kvenna og batamerkin hjá mfl. karla.
Undir lokin lærum við svo nýja hluti um Örn, en Hrafn og Arnar tóku að sér létta gestastjórnun og fræddust um Örn.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Fös 3. nóv Víkingur - Selfoss mfl kvk
Sun 5. nóv Víðir - Selfoss U 2. deild kk
Fös 10. nóv Selfoss - Valur U mfl kvk
Lau 11. nóv ÍBV - Selfoss mfl kk -
Hjörtur Leó fékk þá Atla Ævar Ingólfsson, Árna Geir Hilmarsson og Helga Hlynsson til að fara yfir brekkuna sem mfl karla er í eftir fyrstu leiki tímabilsins. Þeir félagar eru lausnamiðaðir að öllu jöfnu og leysa að sjálfsögðu heimsins vanda.
Næstu leikir Selfoss eru:
Mfl kvenna
Fim 19. okt 19.30 Selfoss - Haukar U
Þri 24. okt 19.30 Selfoss - Fram
Lau 28. okt 113.30 HK - Selfoss
Mfl karla
Lau 21. okt 16.00 HK - Selfoss
Fös 27. okt 19.30 Selfoss - Stjarnan -
Meistaraflokkur kvenna hóf leik um síðustu helgi og óhætt að segja að þær hafi fengið fljúgandi start. Hjörtur Leó tók þjálfara liðsins, Eyþór Lárusson tali og fékk að því loknu góða gesti, stórskyttuna Kötlu Maríu, reynsluboltann Guðrúnu Herborgu og Árna Geir, fyrrum aðstoðaþjálfara liðsins.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Stjörnur, Labbi -
Þá er það loks að byrja, nýtt tímabil með nýjum vonum og nýjum væntingum. Hjörtur Leó fékk Þóri Ólafs í smá spjall áður en hann opnaði allar hurðar og fékk Richard Sæþór, Örn Þrastar og Hrafn Erlings til að leggja línurnar fyrir veturinn.
Strákarnir droppuðu óvæntum tíðindum af leikmannamálum og Richard er á góðri vegferð að spara heimilium landsins aurinn.
Tímabilið hefst á fimmtudag og Selfoss hefur leik í Olísdeildinni á laugardaginn 9. sept þegar strákarnir taka á móti KA kl 16.00. -
Þá er síðustu handboltaleikjum tímabilsins lokið hjá Selfyssingum og Hjörtur Leó fær góða gesti til að gera upp tímabilið. Fyrst mæta Eyþór Lárusson þjálfari og Tinna Soffía Traustadóttir fyrirliði mfl. kvenna. Í sinni hlutuanum mæta svo Þórir Ólafsson þjálfari og Einar Sverrisson stórskytta.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Cha Cha Cha, Käärijä -
Vorið er tíminn og úrslitakeppnin og umspilið komið á fullt og bæði stelpur og strákar að spila til skiptis en samt einhvernvegin alltaf við FH. Hjörtur Leó fékk þá Árna Geir, aðstoðarþjálfara mfl. kvenna og Richard Sæþór leikmann mfl. karla til sín í höfuðstöðvar SelfossTV og fóru þeir yfir síðustu daga og skoðuðu hvað bíður okkar.
Næstu leikir eru:
Mfl karla:
Þri 18. apríl kl 19.40 | Selfoss - FH | Set höllin
Fös 21. apríl kl ??.?? | FH - Selfoss | Kaplakriki*
Mfl kvenna:
Mið 19. apríl kl 19.30 | FH - Selfoss | Kaplakriki
Lau 22. apríl kl 19.90 | Selfoss - FH | Set höllin*
*Oddaleikur ef þörf er á.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Fljúgum áfram, Skítamórall -
Hjörtur smellti á rec og fór yfir málin með Eyþóri Lárussyni, þjálfara mfl kvenna í handbolta og tveim leikmönnum liðsins, þeim Kötlu Maríu Magnúsdóttur og Örnu Kristínu Einarsdóttur.
Þau straujuðu létt yfir tímabilið og þá sérstaklega eftir áramót. Auðvitað mikill fókus á leikinn stóra á miðvikudag, en þá mæta stelpurnar ÍBV í undanúrslitum í bikar. Við hvetjum ykkur öll til að fjölmenna í Laugardalshöllina á miðvikudagskvöldið á Powerade bikarinn. Áfram Selfoss!
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Gull af mönnum, Steindinn okkar, Matti Matt & ReddLights -
HM er að baki, alla vega hjá okkur Íslendingum og fékk Arnar Helgi þá Þóri Ólafsson og Gísla Felix Bjarnason til að gera upp okkar hlut í mótinu. Þeir slá einnig á þráðinn í Hafnarfjörð og spjölluðu við Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfara Hauka og eins af sérfræðingum Rúv í HM stofunni. Hann er einmitt að mæta með Haukana sína um aðra helgi í Set höllina. Þetta er að fara af stað!
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Stick Together, Alicja -
HM í handbolta byrjar í næstu viku og þjóin er nú þegar við það að fara á límingunum. Við tökum virkan þátt og hitum í þessum þætti upp fyrir HM ásamt því að minna fólk á það sem framundan er á Selfossi.
Hjörtur Leó Guðjónsson tók á móti Árna Geir Hilmarssyni aðstoðarþjálfara mfl kvenna, Erni Þrastarsyni íþróttastjóra og Hörpu Brynjarsdóttur betri helmingur Ómars Inga og fyrrverandi leikmaður mfl. kvenna. Já það eru vissulega spennandi tímar framundan! -
Hjörtur Leó Guðjónsson fékk gestina góðu í stúdíóið. Þeir Örn Þrastarson, Richard Sæþór Sigurðsson og Gísli Guðjónsson fóru yfir fyrri hluta tímabils og snertu lítið eitt á veislunni sem framundan er í janúar. Það er ljóst að þjóðin verður stillt inn á HM í handbolta sem aldrei fyrr.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: cashmere draumur, Herra Hnetusmjör & Birgitta Haukdal -
Það var þokkalega létt yfir mönnum þegar þeir settust í Smiðjuhljóðverið fljótlega eftir baráttuna um Bergrisann. Arnar Helgi fékk þakmennin Örn Þrastarson og Árna Geir Hilmarsson ásamt þúsund marka manninum Einari Sverrissyni til að gera upp kvöldið og fara yfir það sem liðið er af vetri.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Vetrarfrí, Prins Póló & Memfismafían ft K.óla -
Selfoss hlaðvarpið snýr aftur með sérstakan þátt þar sem nýjir þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna í handboltanum eru kynntir til leiks. Það eru þeir Eyþór Lárusson sem hefur verið í kringum handboltan á Selfossi frá unga aldri og hins vegar Þórir Ólafsson goðsögn í lifandi lífi, en þó fyrst og fremst reglulegur spekingur í Selfoss hlaðvarpinu.
Þeir eru báðir að takast á við sín stærstu verkefni í þjálfun til þessa og báðir eru þeir heimamenn. Selfoss hlaðvarpið óskar Eyþóri og Þóri hjartanlega til hamingju með ráðninguna og óskar þeim frábærs gengis.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Í larí lei, Stuðlabandið - Mehr anzeigen