Folgen

  • Í þessum þætti höldum við áfram að velta fyrir okkur tilveru og þróun Íslenska svartmálmsins og gerum heiðarlega tilraun til að merkja bylgjur og/eða kaflaskil inn á ímyndað tímatal hvar ár og atburðir eru á reyki, eins og vera ber (senur og list er ekki stærðfræði, heldur flæðandi).

    Til að gæta þess að viðfangsefnið sé nálgast frá sem flestum sjónarhornum og af miklu innsæi og reynslu fengum við Þóri Garðarsson (Vafurlogi, Svartidauði, Sinmara o.fl), Tómas Ísdal (Naðra, Misþyrming, Carpe Noctem o.fl.) og Friederiku Wießner Petrudóttur (Mondernte) til liðs við okkur og áttum langt, ítarlegt og gott spjall.

    Þessi kvöldstund er í boði Malbygg. Malbygg er brugghús hvers hágæða handverksdrykkir eiga sannarlega upp á pallborðið hjá Stokkið í eldinn og mun víðar.
    Finnið og fylgið Malbygg á netinu:
    Heimasíða.
    Facebook.
    Instagram.

    Tónlist í þættinum:

    MARTRÖÐ - Draumleysa af Transmutation of Wounds (2016)
    ANDVALD - Afvegaleiðsla af Undir skygg​ð​arhaldi (2019)
    CARPE NOCTEM - Vargsf​æ​ð​ing af Carpe Noctem (2009)

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

    Þessi þáttur hefði ekki verið mögulegur án Málmsmiðjunnar. Málsmiðjan er viðtalshlaðvarp með fókusinn á þungu Íslensku rokki af öllum gerðum. Frábær viðtöl og heimild. Besta leiðin til að kynnast persónum og leikendum Íslenska jaðarssin.
    Málmsmiðjan er á Spotify.

    Andkristni MMXXIII. 21.& 22. desember
    Elsta þungarokks hátíð á Íslandi, hin árlega Andkristni hátíð snýr aftur og nú stærri en nokkru sinni fyrr. Í fyrsta skipti verður hátíðin haldin í IÐNÓ, elsta tónleika stað í Reykjavík. Þriggja daga veisla sem enginn svartmálms aðdáandi ætti að láta framhjá sér fara.
    Miðasala.

  • Verkefnið er ærið og grafalvarlegt. Svartmálmurinn er kóngurinn hér á landi og þannig hefur það verið í áraraðir frá og með sveitum á borð við Carpe Noctem, Chao, Svartidauði, Finngálkn svo einhverjar séu nefndar. En hvað var í gangi áður en sú markverða og heimsþekkta bylgja hófst? Var eitthvað þarna (Flames Of Hell, Forgarður Helvítis, Sólstafir?) sem hægt er að setja undir sömu reghnhlífina og kalla með sönnu fyrstu bylgju svartmálm?

    Til að tækla dæmið voru gárungarnir og grúskararnir Eyvindur Æðsti-Prestur Gauti og góðvinur þáttarins Magnús Halldór Pálsson, settir í rökstóla hvar þeir völsuðu um myrk og köld skúmaskot minninga sinna og Íslands sem var; kalt, miskunarlaust og áfengiseitrað.

    Guðmundur "Muggur" Helgi; minning þín lifir.

    Tónlist í þættinum:

    MIND AS MINE - Author of Your Dreams af Fire & Ice - An Icelandic Metal Compilation (1997)
    ÁMSVARTNIR - In Darkness af Demo (1996)

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Fehlende Folgen?

    Hier klicken, um den Feed zu aktualisieren.

  • Þegar ein af þeim stærstu og mikilvægustu gefa út þá verðum við að taka það fyrir. Banished By Sin var vel tekið af áðdáendum og mörgum skrípentum. Hvað segjum við/þið?

    Flórídakvartetinn Deicide þarf ekki að kynna fyrir neinu ykkar. Hér er á ferðinni ein sögufrægasta dauðarokkssveit allra tíma. Það er ekkert flóknara en það. Án Deicide værum við tæplega komin svona langt og víða eins og raun ber vitni.
    Það að þeirra njóti enn við, og séu enn að gefa út plötur í fullri lengd, er síðan einhversskonar kraftaverk og auðvitað í krafti mykrahöfðingjans. Vafalítið.

    Nema hvað! Í vor kom út þrettánda plata þeirra; Banished By Sin. Þrettánda! Sex ár hafa liðið síðan Overtures Of Blasphemy kom út. Kevin Quirion er ennþá inni sem annar gítarleikaranna en Mark English var skipt út fyrir Taylor Nordberg. Glen "Líf og fjör" Benton og Steve "vímuluast Ísland árið 2000" Asheim eru enn í brúnni eins og vera ber. Gjörsamlega ótrúlegir.

    Tónlist í þættinum:
    Groovestreet með False Majesty (2024)
    Where Crows Dare Not Go með Herakleion af Necroverse (2024)

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Hljómsveitin Nightmarer varð á vegi mínum fyrir nokkrum árum síðan þegar ég var í miðri dauðaleit að nýju og fersku dauðarokki. Ef minnið mitt svíkur mig ekki, þá átti þessi dásemdarstund sér stað í ástralska þungarokksþættinum Scars and Guitars. Hefur þáttur sá reynst mér ansi mikil gullkista allar götur síðan þegar kemur að góðri, þungri tónlist.

    Það var þröngskífan Monolith of Corrosion sem greip mig slíkum heljartökum að ég hef vart ráðið mér af kæti síðan. Gerði mér t.a.m. sérstaka ferð yfir til Danmerkur í fyrravetur til að sjá Nightmarer á tónleikum. Í leiðinni notaði ég tækifærið og tók viðtal við Simon Hawemann, gítarleikara sveitarinnar.

    Vona ég að hlustendur njóti vel.

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Bird RVK bar & grill (Tryggvagötu) kynnir:

    Ride The Lightning er af mörgum talin sú besta; í það minnsta það besta sem runnið hefur undan rifjum Metallica. Pælarar og málsmetandi tónlistarfólk teflir Ride The Lightning gjarnan fram þegar leitað er álits þeirra um bestu skífu Metallica og jafnvel bestu þungarokksplötur allra tíma.
    Það verður ekki deilt um mikilvægi þessarar plötu svo sígild er hún. Réttir menn á réttum tíma. Hvar standa Smári Tarfur og Birkir Fjalar gagnvart þessum burðarstólpa?

    Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!

    Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).

    Þessi þáttur ver í boði Bird RVK; samlokustaðurinn, tónleikastaðurinn, karaoke athvarfið...
    Axel Hoppe skrifar: "Delicious and affordable sandwiches and a good selection of beers. Good vibe and great music. Don't miss this place."
    Fylgið Bird á bird_rvk á Instagram.

    Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

  • Bird RVK bar & grill (Tryggvagötu) kynnir:

    Sumarglundroða lýkur, karlarnir sjá glitta í rútínu vetrar og sitja betur og betur í sjálfum sér.
    Hvað voru stjórnendur þáttarins að gera? Hvað ætlar þeir að gera? Hvað gerir þú?

    Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!

    Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).

    Þessi þáttur var í boði Bird RVK; samlokustaðurinn, tónleikastaðurinn, karaoke athvarfið...
    Axel Hoppe skrifar: "Delicious and affordable sandwiches and a good selection of beers. Good vibe and great music. Don't miss this place."
    Fylgið Bird á bird_rvk á Instagram.

    Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

  • Hin dáða og sívinsæla Blóðmör snýr aftur til tónlauks eftir hart nær tveggja ára þögn í þeim málaflokki. Nýir meðlimir kynntir til leiks, ný tónlist rædd, nýir lagatitlar o.s.frv.

    Blóðmör eru:
    Haukur Þór Valdimarsson
    Andri Eyfjörð Jóhannesson
    Óttarr Daði Garðarsson Proppé

    Tónlist í þættinum:
    Sigga - la - fó - BÚGDRÝGINDI (Kúbakóla, 2002)
    Falska hetjan - BLÓÐMÖR (Í Skjóli Syndanna, 2021)

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Það var eitthvað við Andlát. Þetta tiltölulega stutta tímabil þar sem hróður þeirra óx og óx og ekkert gat þá stöðvað. Hvernig tónlist bunaði úr þeim var síðan það sem fólkið hengdi sig fyrst og fremst á. Upp úr þessu spruttu vináttur og vinahópar hvaðanæva af Stór-Höfuðborgarsvæðinu og Mosfellsbæ bundust skapandi böndum.

    Hver fílar ekki risastór og grípandi riff sem grúva eins og djöfullinn? Erindi sem dauðarokka líkt og við einhverja blóðtjörn á Náströnd? Svo er það haltu-kjafti-ekkert-helvítis-rugl trommuleikur og bassi sem gætir þess að það sé malbikað þétt og vandlega yfir lifendur og liðna.
    Samlíkingar? Það er alveg hægt að fara þangað líka. Cannibal Corpse að sprengja fyrir jarðgöngum ásamt þýsku geðsjúllunum í Acme. Já, já. Aftershock inn í brennandi vöruskemmu á meðan þeir spila allra hörðustu riff Pantera. Því ekki það?!?Hvað sem því líður þá eru hjólför Andlát enn greinileg eftir öll þessi ár.

    Andlát skipuðu (meðal annarra):

    Bjarki Fannar Atlason (Finnegan)
    Valur Árni Guðmundsson (Ask The Slave, Squirt)
    Haukur Valdimar Pálsson (Myra, Squirt)
    Sigurður Trausti Traustason

    Magnús Örn Magnússon (Gyllinæð, Stegla)

    Tónlist í þættinum:
    What Was Intended - ANDLÁT (Mors Verum, 2004)
    Threatened - LIVING SACRIFICE (Reborn, 1997)
    Broken - MARTYR A.D. (The Human Condition in Twelve Fractions, 2000)
    The Martyr's Blood - HEAVEN SHALL BURN (Whatever It May Take, 2002)

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Heill þáttur um eitt af eftirminnilegustu og dáðustu gítarsólóum þungarokkssögunnar... Því eins og Snorri Barón sagði: „Gítarsóló eru framtíðin.“ Þetta vita öll.

    Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér stórleik og margra hæða músíkölsku sólói Alex Skolnick (Testament, Savatage, Metal Allegiance, Trans-Siberian Orchestra) í titillagi plötunnar Practice What You Preach (1989) með Testament.
    Þeim til fulltingis voru Sigurgeir Sigmundsson (Drýsill, Gildran, Big River Band o.fl.), Þráinn Árni Baldvinsson (Skálmöld, Kalk, Klamedía X) og Sigurjón Óli Gunnarsson (Devine Defilement, Epidermal Veil, Holdris et al).

    Á einhvern lífrænan máta þróast þátturinn yfir í minningar um og velþóknun á Björgvini Gíslasyni, gítarleikara og mannvin, en hann lést fyrir skemmstu. Blessuð sé minning hans.

    Tónlistin í þættinum:
    - SEVEN SPIRES "Almosttown" (2024)
    - PELICAN "Á sprengisandi" (1974)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • "Fjólublátt hraun við barinn"

    Hin leyndardómsfulla Íslenska þungarokkssveit, BLEEDING VOLCANO (1990 og 1992), fór mikinn þrátt fyrir stuttan líftíma. Má segja að sveitin hafi búið í einhverju einskismannslandi hvar ein þungarokksstefna virtist hvorki mæta né taka við af annarri.

    Þetta var stuttur tími en í þessum glugga átti margt og mikið sér stað og er saga BLEEDING VOLCANO furðu "kjötuð" þegar upp er staðið. Þótt þeir hafi verið sér á báti hér heima þá voru þetta drengir með metnað og höfðu augastað á erlendum miðum enda átti þeirra þunga og melódíska rokk samtón með því ferskasta út í heimi á þeim tíma, tónlist sem átti eftir að taka yfir að stórum hluta. BLEEDING VOLCANO hefði klárlega átt erindi ytra. Það er þetta með að vera réttir menn, á röngum stað á réttum tíma.

    Hallur Ingólfsson (trommur), Sigurður Gíslason (gítar) og Vilhjálmur Goði (söngur) mættu í hljóðver Stokkið í eldinn og voru afburðar skemmtilegir viðmælendur. Samtal þetta veitir einstaka og ríka innsýn inn í rokklandslagið eins og það var á þessum tíma: mikið af tengingum, afhjúpunum, nöfnum á spilurum og hljómsveitum þess tíma o.s.frv. Saga rokksins, sannarlega. Guðmundur Þ. Sigurðsson (bassi) búsettur í Kanada lét svo í sér heyra símleiðis og gammurinn gaus sem aldrei fyrr. Aukinheldur var demó grafið upp sérstaklega fyrir þennan þátt ásamt tónleikaupptökum.

    Eina hljóðversskífa sveitarinnar, Damcrack, kom út 1. október árið 1992. Hæg og kremjandi aurksriða kemur í huga eða vel vopnað risa-beltisdýr sem ekki verður stöðvað. Lögin á Damcrack velta áfram af grimmri sannfæringu. Eldfjallið er virkt, eftir allt saman, og reiknað er með miklu sprengjugosi 21. Mars í Bæjarbíó. Aðeins í þetta eina skipti! Það verður mikið um dýrðir.

    Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!

    Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

  • Smári Tarfur og Birkir Fjalar rifja upp ljómandi skemmtilegt og gott viðtal við DEVINE DEFILEMENT. Ástæðan var ný plata -- Age Of Atrocities -- sem var í vændum, plötusamningur og almenn ævintýri sveitarinnar á þessum tímapunkti á ferli hennar.
    Arek "Peppaðastur" Alejnikov (bassi/bakraddir) og Ingólfur Ólafsson (söngur) eru dæmalaust góðir gestir þegar kemur að þvaðri líkt og heyrist hér.

    Njótið.

    Tónlist í þættinum:
    Inside - MORS VERUM (The Living, 2021)
    Autoerotic Amputation - AFTERBIRTH (In But Not of, 2023)
    Raised in Victory / Razed in Defeat - DYING FETUS (Make Them Beg For Death, 2023)
    S.C.U. - DEVINE DEFILEMENT (Age Of Atrocities, 2023)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!

    Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).

    Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

  • Tveir aldraðir leiðindaskarfar finna sig knúna til að ræða lög sem þeir þurfa alls ekki að heyra aftur. Hvernig fer sjóferð sú?

    Tónlist í þættinum:
    Sinew Censer með SPECTRAL VOICE af Sparagmos (2024)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!

    Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).

    Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

  • Nú er lag. Nú skal fagnað. En fyrst...

    Í lok nóvember 2023 kom út ógurleg þröngskífa sem minnti okku ekki bara á að UNE MISÉRE væru alls ekki af baki dottnir (þrátt fyrir töluvert mótlæti), heldur að þeir eru ákafari, harðari og þyngri en nokkru sinni. Það hreinlega gustar af lögunum á Damned þröngskífunni, flutningur eins og hann gerist bestur og hljómurinn svakalegur. Hlustið á Damned. Mætið á útgáfutónleikana.
    Nema hvað, tveir meðlimar sveitarinnar mættu í viðtal til okkar 23. nóvember 2023 á X977 og það gefur að heyra hér í þessum þætti.

    UNE MISÈRE heldur útgáfutónleika fyrir nýjustu útgáfu sína DAMNED á Kex Hostel þann 9. Febrúar 2024. Platan verður spiluð í heild sinni og fær hljómsveitin sér til liðsauka rapparann Emmsjé Gauta til þess að sjá um upphitun.

    UNE MISÈRE skipa:
    Fannar Már Oddson
    Gunnar Ingi Jones
    Benjamín Bent Árnason
    Þorsteinn Gunnar Friðriksson
    Rúnar Geirmundsson
    Daníel Máni Konráðsson

    Tónlist í þættinum:
    This is Where We Kill Time - CLIFF CLAVIN (The Thiefs's Manual, 2010)
    Theory Of Mind - KUBLA KHAN TX (Netskífa, 2023)
    God- CELESTINE (At The Borders of Arcadia, 2007)
    Drown - UNE MISÉRE (Damned, 2023)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!

    Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).

    Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

  • Hann er kominn heim! Tarfurinn hefur lokið útlegð sinni og við fögnum því auðvitað með því að
    a) Vakna af værum og lööööngum blundi
    b) Kíkja á nýjasta nýtt hjá okkur báðum
    c) Tíunda hvað sé á döfunni
    d) Stökulsgagnrýni (Kerry King)
    e) Stefnulaust þvaður
    f) Drekka te

    Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook!

    Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).

    Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

  • Hugsjónamennirnir Jónas Haux og Hörður Jónsson, báðir meðlimir Morpholith, mættu í kaffi hjá strákunum til að ræða Hellinn Metalfest #3 (fyrir alla aldurshópa) sem fram fer 14. október næstkomandi, tilurð og stöðuna á Morpholith þessi dægrin, pælinguna á bak við og tilgang Reykjadoom (áður Doomcember) en síðast en ekki síst tilvonandi heimsókn doom og sludge metal risanna í Bongripper.

    Hellirinn Metal Fest #3 fer fram 14. október, í TÞM/Hellinum og hefst klukkan 18 fyrir alla aldurshópa.
    Fram koma:
    ULTRA MAGNUS
    BLÓÐMÖR
    DAUÐYFLIN
    NYRST
    ALCHEMIA
    ZHRINE

    BONGRIPPER koma fram á Gauknum 26. október næstkomandi ásamt
    SLOR og MORPHOLITH.

    Tónlist í þættinum:
    * It's Alright - ALCHEMIA (New Reality, 2021)
    * Orsök - NYRST (Orsök, 2020)
    * Satan - BONGRIPPER (Satan Worshipping Doom, 2020)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Það er alltaf mikill glaumur og gleði þegar Reykjavík Deathfest á sér stað. Í raun ættum við að vera þakklát fyrir þessa hátíð og hugsjónastarfið sem hún grundvallast á. Metnaður og stemmning, tengingar og uppgötvanir, það er það sem allt snýst um. Hér er dauðarokkið --og afkimar þessu-- komið til vegs og virðingar.

    Til að ræða þetta, sögu hátíðarinnar og þau atriði sem eru á boðstólnum þetta árið, fengum við til okkar tvo eldhressa hátíðarstrumpa sem brenna fyrir málstaðinn, þá Ingólf Ólafsson og Stefán Friðriksson.

    Hátíðin fer fram 29. til 30. september á Gauknum.

    Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Lengsta tilhlaup Stokkið í eldinn til þessa og ekki að ósekju. Þetta er stór, safaríkur og blóðugur biti og mikið af tilfinningum í spilinu. Einir af guðfeðrum dauðarokksins, Obituary, liggja til grundvallar, nánar tiltekið fyrsti tvær plötur þeirra; Slowly We Rot og Cause Of Death.

    Aldargamall vinur og ævifélagi Smára og Birkis, Baldur Beck, er þeim til fulltingis í þessi sneisaþykka niðurbroti. Komið endilega í þetta ferðalag með okkur og lát heyra! Við erum blood soaked andspænis gates of hell! Vér endum body bag í! Dzzzzzzaaaaaauuuuuuhhhhh!

    Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Heill þáttur um eitt gítarsóló og það úr Júróvisjónlagi? Að sjálfsögðu!

    Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér stórleik Friðriks Karlssonar (Mezzoforte, Heart To Heart, Stjórnin, Tívolí) í poppsmell Model, „Lífið er lag.“
    Þeim til fulltingis voru Þráinn Árni Baldvinsson (Skálmöld), Haukur Þór Valdimarsson (Blóðmör) og Snorri Barón (ríki myrkrahöfðingjans).

    Tónlistin í þættinum:
    - DARK HARVEST "Going South" (2008)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Sannast hið fornkveðna að á misjöfnu þrífast börnin best. Þetta vita Smári Tarfur og Birkir Fjalar. Hvað hefur það með nokkurn skapaðan hlut að gera, eða öllu heldur, með þetta hlaðvarp og þessa miklu þögn? ...Það veit enginn.

    Af hverju hefur engin þáttur farið í loftið síðan 3. júní síðastliðinn? Svörin er að finna í þessum ólgandi þætti. Ólgandi!

    Hvað sem því líður þá lifir Stokkið í eldinn. Lifi!

    Tónlistin í þættinum:
    - GRAVESLIME "Double Damage" af Roughness And Toughness (2003)

    Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook!

    Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu.
    Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
    Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
    Luxor er þekkingarhús viðburða.
    Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf.

  • Þungarokksbræðurnir standa oft á gati þegar Human plata Flórídarisanna í Death ber á góma. Ástæðan er einföld; þegar um tímamótaverk er að ræða - sem tíminn fær ekki bitið á - þá verður lotningin slík að hún breytist nánst yfir í óttablandna virðingu.

    Það er svo ægilega mikið sem loðir við foringja sveitarinnar, frumkvöðulinn Chuck Schuldiner, og hans áhrif á þungarokkið æ síðan hann gaf út sína fyrstu plötu. En það er meira. Hann var ólíkindatól og vandræðapési, en þó ekki í hefðbundnum þungarokksskilningi þessara orða. Hann er engin Philip Anselmo eða Tommy Lee. Hann er eitthvað annað. Miskilið nörd? Sérhlífinn fýlupúki? Yfirgaf hann hljómsveit sína á miðju tónleikaferðalagi og þeir þurfti að spila án hans, söngvaralausir? Já. Hnakkreifst hann við umboðsmann sinn og sagði honum upp og réði eins og um jójó væri að ræða? Já. Skipti hann meðlimum út og inn án þess að láta þá vita? Ó já. Er hann einn af allra bestu lagasmiðum og útsetjurum þungarokksins? Jahá!

    Blessuð sé minning meistarans!

    Og já, Birkir mismælti sig þegar hann sagði "Flight of Icarus" í stað "Where Eagles Dare"! Gerist á bestu...
    En, er Human merkasta dauðarokksplata allra tíma? Það getur bara vel verið. Er Human besta plata Death? Eigum við ekki að komast að því í sameiningu?

    Sérstakur gestur þáttarins er okkar eigið undrabarn og snillingur, Magnús Halldór Pálsson (Forgarður Helvítis, Changer, Dark Harvest, Vetur, Beneath o.s.frv.).

    Tónlistin í þættinum:
    - BLOODLETTER "Blood Is Life" af netskífu (2023)
    - GADDAVÍR " Heimabæjarhetja" af Haltu kjafti ég hef það fínt (2022)